Æskan

Årgang

Æskan - 28.01.1902, Side 7

Æskan - 28.01.1902, Side 7
35 •■ng litli byrjaði. Þegur hann var • 'hij3 r- • ieð dalítið, sló faðir hans saman 1 '’hiuntj’u at undrun og aðdáun, því næst 1 : ín greipar, svo sem hann væri að ðiðjast- ■ir, og þegar lagið var á enda rétt i.ust, fyltust auga hans tárum, en gleðitár, því hann hafði aldrei tnð nokkurt lag með svo helgri 1» . sem nú á hljóðfæraslátt barnsins. Sólin var rétt komin að því að renna, og himininn var glóðrauður niður við sjóndeildarhringinn, en langir skuggai’ fellu inn í herbergið, þagar barnið lauk loks við hljóðfærasláttinn og horfði spyrjandi augum á föður sinn. „Wolfgang, elskulegi litli Wolfgangminn!,, mælti faðir hans mjög hrærður í huga, og um leið tók hann son sinn upp og þrýsti honum grátandi að brjósti sér. Hrærður í huga hóf hann augu sín til himins og mælti: „Guð minn góðnr eg þakka þér fyrir þessa gjöf þína og eg skal gæta hennar eins og hún væri helgidóm- ur!“ „Nú lofarðu mér víst. að læra að leika á klaverið", mælti dfengurinn í öruggum bænarrómi. „Já, þegar snildargáfan kemur jafn skært og fagurt í Ijós væri synd að hefta hana. Frá því í fyrramálið fer eg að kenna þér“. Wolfang litli kysti og klappaði föður sín- um. því nú hafði hann fengið sína innileg- ustu ósk uppfylta. Þvi næst hljóp hann aftur úr fanginu á honum, og að klaver- inu og tók að æfa sig á ný. Gleðiblæ sló á andlit hans og hann var glaðari og ánægðari, en nokkru sinni áður. En faðir- inn stóð kyr og starbí á skara gullroðna kvöldhimininn, jafnframt og hann þakkaði guði af hrærðu hjarta náðargjöf hnns. Úr „Börnenes Bog“. Wolfgang Amadeus Mozart var fæddur 27. jan. 1755. Sex ára gamall tók hann að semja sönglög. um það leyti fór faðir hans með hann og Nanetta Maríanne syst- ur hans út í heiminn og léku þau á hijóðfæri fyrir fé. Átta ára gamall lék Mozart á orgel fyrir Frakkakonung og allri hirð hans, og um sama leyti voru prentuð fyrstu lögin eftir hann. Þegar hann var á níunda árinu var faðir hans með þau systkyni á ferð um Holland. Lögðust þau þar í bólunni. Lá Mozart litli lengi en samdi þó sex lög meðan hann lá. Þrettán ára gamall var hann gerður að söngstjóra í Salzburg. Sama árið fór hann til Ítalíu, samdi hann þar söngleik einn, er þótti svo mikið varið í, að hann var leíkinn 20 kvöld í röð á leikhúsi í borginni Milano. Rigndi þegar yfir hann titlum og heiðursmerklum og þó var hann þá tæplega kominn á fermingaraldur. Skömmu siðar fluttist hann til Yínarborg- ar, höfuðborgarinnar í keisaradæminu Aust- urríki. Hann dó þar 5. þes. 1791 að eins 36 ára gainall, en svo miklu hafði hann afkastað, að 600 lög stærri og smærri liggja eft.ir hann og er sagt að það að vöxtum og gæðurn só svo niikið, að tíu tónaskáld gætu verið ánægð með að skifta því á milli sín, er hann hefir unnið. Lög eftir hann eru meðal annars við þessi íslenzku kvæði: „í hafið fölleit sólin sígur". og „Um morgun æfi minnar".

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.