Æskan

Årgang

Æskan - 01.07.1905, Side 1

Æskan - 01.07.1905, Side 1
VIII. árg. Eignarrétt hefir: St.-Stúka íalands (I. O.G.T.) Rvík. Júlí. 1905. Ritstjóri: séra Friðrik Friðriksson. 19-90. tbl. inn tfyrsti vinur minn. Eg átti heima í Brighton. í þeirri borg bjuggu margir efnamenn, er lifðu af vöxtunum af fé sínu; þangað komu og margir ferðamenn, er voru að skemta sér, og af því að loftslagið var svo heil- næmt, þá leituðu þangað margir sjúk- lingar til þess að ná aftur heilsu sinni. Eg var tólf ára er saga þessi gerðist, og hafði stundum ofan af fyrir mér með því að bursta skó manna á götum úti, en minn vanalegi atvinnuvegur var þó að — hnupla. í fjögur ár hafði eg gert mig sekan í þessu athæfi og var orðinn mjög kænn og leikinn í því. Aldrei hafði eg komist undir manna hendur, og heldur eigi liafði nein grunsemd fallið á mig. Átti eg það víst að þakka rjóðu kinnunum, sakleysissvipnum og liinu kurteysa viðmóti mínu. Móðir mín var dáin, faðir minn sat í fangelsi, eg var því munaðarlaus, vesal- ings villuráfandi flækingur, er hafðist við á götum úti. Eitt kveld í október mánuði í leiðin- legu votviðri hallaði eg mér upp að rimlagarði einum til þess að hvíla mig; heyrði eg þá blístrað rétt hjá mér og leit upp. Ungur maður stóð í dyrunum á lnísi einu beint á móti og hélt á nokkr- um bréfum í hendinni. Eg stökk þvert yfir götuna til lians og tók ofan fyrir lionum. »Getur þú komið þessum bréfum i póstkassann fyrir mig, drengur minn?« sagði hann við mig. »Eg hef engan að senda með þau, og get ekki sjálfur far- ið, því eg er veikur«.— Eg sá strax á honum, að hann væri mjög veilcur. Hann var hár og grann- ur, hér unr bil um tvítugt. Hann var mjög fölurog kinnfiskasoginn.ograuðleitir blettir í kinnunum; augun voru stór og björt. Hendur lians voru nær gagnsæar, svo magrar voru þær, og fingurnir mjóir og bláir af kulda.

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.