Æskan

Volume

Æskan - 01.08.1905, Page 6

Æskan - 01.08.1905, Page 6
86 ÆSKAN. Pú stóðst á tindi Heklu hóin Og horfðir yíir landið friða, Par sein um grænar grundir líða Skínandi ár að ægi blám, En Loki bundinn beið i gjótum Bjargstuddum undir jökulrótum. Pótti þér ekki ísland þá Yfirbragðsmikið til að sjá. Jónas IIallgrímsson. Þegar lil austurs er litið frá (ie)Tsi, þá blasa við lágir fjallahryggir. Að baki þeirra griæfir eldfjalladrotningin Helda, tignarleg á svipinn og þögul, í dimmblárri kápu. A kápunni blika allavega lagaðar jökulfannir. Hún er oft búin að bræða af sér, síðan sögur l'ara af. Margar sögur hafa gengið af gosum Heklu. Ein er frá 1766. Það ár gaus hún 5. aþríl. Þegar gosið hófst, þá urðu landskjálftar og þrumur gengu og' eldingar; öskustrókur j)eyttist upp úr henni. Stóreflis vikurmolar og hraunstykki lcomu niður i tveggja og þriggja mílna fjarlægð. Einn glóandi steinn, tæpur fjórðungur að jjyngd, kom niður hjá bænum Næfurholti og sökk svo á kaf i frosna jörðina, að honum varð ekki náð upp nema með járnköllum. Sandurinn og askan varð alin á dýpt í grend við fjallið; það er víst, að næstu bygðir hefðu farið á kaf i sand og ösku, ef ekki hefði viljað svo heppilega til, að vestanvindur þeytti miklu af öskunni austur yfir jökla og öræfi. í nærsveitunum vai'ð niðdimt um hádaginn og 20—30 mílur i norður frá Heklu gátu menn ekki greint svart frá hvítu og urðu að þreifa fyrir sér til að rata í húsum inni (í Glaumbæ í Skagafirði), meðan askan var að falla; þar varð öskulagið hálf alin á d)rpt yfir alla jörðina. Hinn 9. apríl lók hún að gjósa með tvöföldum krafti. Þá varpaði hún upp úr sér glóandi stórbjörgum, sem svifu eins og' ílugnahópur innan í öskustróknum og féllu svo niður állstaðar umhverfis. Einu sinni sáust átján logar í einu upp úr fjallinu. Síðan tók straumur af l)ráðnu grjóti að rénna suðvestur Irá fjallinu, mílu vegar; yfir þeim straumi lá þykt og þétt gufuský. Það gaus úr tveimur eldgígum i senn; var annar þeirra í ljaflstindinum og hinn neðar, sunnan og vestan i fjallinu. Svona hélt hún áfram fram á haust, J)ó hún færi hægara eftir jiví sem lengra leið frá. Bláleit móða eða mistur lá jafnan yfir öllu landi. Einu sinni var öskustrókurinn mældur og J)á var háriri 16000 fet á hæð upp frá fjallstiudinum, og þó varð hann stundum hærri. Alt af voru dynkir og landskjálftar, 2—3 kippir á hverjum sólarhring. Dynkirnir heyrðust alt sumarið i margra mílna fjarlægð frá fjallinu, ýmist eins og öskrandi reiðarþruma eða eins og hleypt væri af mörgum fallby’ssum í senn. Bæir hrundu af landskjálftunum; aðrir lögð- usl i evði af öskufallinu stórir kjarr- skógar eyddust og afréttir skemdust. Vikur barst fangt út á haf og mætti Jiar skipum á uppsigling frá Dan- mörku, 30 mílur frá landi; vikur fá líka í hrönnm með ströndum fram,

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.