Æskan

Volume

Æskan - 01.02.1908, Page 4

Æskan - 01.02.1908, Page 4
12 Æ S Ií A N svo síðast sungið: »Lof og þakkir hæstu hljómi« o. s. frv. Skildust svo allir kl. nálægt tíu um kveldið, og að því er eg held, vel ánægð- ir og fór hver heim til sín. »Svava« hefir tvær verndarstúkur, st. Hlín nr. 33 og Bifröst nr. 43; leggja þær livor um sig einn gæzlumann til stúkunnar og einn varagæzlumann. Til þessarar skemtunar lagði st. Hlín góðan skerf, því tveir meðlimir liennar br. Árni Jóhannsson og Teodór sonur hans stýrðu söngnum og hljóðfæraslættinum, sem ekki gerði hvað minst til að gera kveldið ánægjulegt, og eru þeir þó ekki meðlimír »Svövu« né við liana riðnir að öðru leyti. Takmark unglingastúknanna er háleitt o g göfugt, því eins og þið vitið er aðal- skilyrðið fyrir fögru og friðsælu æfiskeiði að vera laus við alla illa siði, t. d. drykkjuslcap, tóbaksnautn, ljótan munn- söfnuð og óliollar skemtanir, og takmark unglingareglunnar er að innræta börn- unum viðhjóð við öllu þessu og að lijálpa foreldrunum til að uppala landi voru göfuga syni og dætur; en eins og eðlilegl er, þá gengur starlið misjafnlega, á því svæði og vel sé því liverjum þeim sem leggur hönd á plóginn og fyllir hópinn að einhverju leyti. Kæru.ungu vinir mínir, sem lesið þetta og ef til vill eruð ekki í neinni unglinga- stúku — viljið þið ekki leggja hönd á plóginn og koma í hópinn og reynast trúir. Fáið leyfi foreldra ykkar eða vandamanna til þess og komið svo. En svo megið þið ekki líta til baka, þið hafið”þá, með aðstoð guðs, sagt ósiðum og freistingum stríð á hendur með skuld- bindingunni og því verðið þið að reyn- ast trú, svo þið gelið orðið góð og nyt- söm börn landsins okkar, sem okkur þykir svo vænt um og viljum að Hði svo vel. Talcmarkið er að verða: Sönn, kær- leiksrík og saklaus. Er það ekki fagurt? Eg veit þið segið: »Jú«. Guð gefi ykkur öllum gæíu og þrótt til að ná því, hvar og hver sem þið eruð. IJess óskar vinur ykkar. í janúar 1908. Sj. J. FiOriiain. »Hvaðan koma fiðrildin þau arna?« spurði Nonni pabba sinn. Þeir voru á gangi upp í brekkum, seint á sumar- kvöldi, í sólskini og hlíðasta veðri. »Það er eins og þau þjóti upp alt í einu, þegar veðrið er gott, einkum á lcveldin og Ilögra þá hvert í kapp við annað og sitja svo að segja á hverju strái. Þau koma líklega út úr blómunum, því ég sá eitt skjótast út úr flugnabúrinu hérna á melnum. Pabbi hans var alt afvanur að leysa úr spurningum lians, eins og hægt var. »Ekki koma íiðrildin úr

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.