Æskan

Árgangur

Æskan - 01.02.1908, Síða 8

Æskan - 01.02.1908, Síða 8
16 ÆSKAN Hér er eitt dæmi af því. J. Hver er sá veggur viður og hár, vænum settur röndum, grænn og rauður, gulur og blár, gerður af meistarahöndum? I. Öll eru börnin orðin svöng, allan vantar forðann; Þorra-dægur þykja löng, þegar hann blæs á norðan. J. Gott er að vera góðurn hjá, geta sneitt lijá hinum, en sárt er að vera sviftur frá sinum beztu vinum. 7. Fallegur ertu, frændi minn, furðu knár á velli; bið ég, guð á glókoll þinn gæfustraumum helli. J. Stíga þau dans í strjálum skóg, er stjarnan skín í vestri, og tóa þýtur ga-ga-gó og gengið er frá lestri. I. Sástu stjörnur sjö í hóp, sýndust þér þær gengnar langt? Gæskuríkur guð þær skóp, ganga þær því aldrei rangt, J. Úti flýgur fuglinn minn, sem forðum söng í runni, ekkert skjól á auminginn og ekkert sætt í munni. Svona liéldu þau áfram í rökkrinu, þangað til inamma kveikti. Og þau urðu svo minnissterk af þessu, að alt toldi í þeim, sem þau lieyrðu, vísur og kvæði og sögur. Ljóta vísu kváðu þau aldrei. Voru þetla ekki nytsamar íþróttir? Vilja börnin ekki fara að dærni þeirra? S in ásögur. D.'tsamleg hjálp. Einu sinni hitti norsk skúta dreng á báti úti á rniðjum Norðursjónum. Drengurinn liélt á bibh- unni sinni. Drengurinn var frá Eng- landi. Hann kvaðst liafa setið frarn við sjó og verið að lesa í biblíunni sinni. En þá safnaðist hópur af drengj- um utan um hann og þeir hæddu liann og ertu; fór hann þá út í bát, sem flaut við bryggjuna, til þess að geta verið í næði. En drengirnir bjuggu þá á báts- festarnar og bátinn bar á sjó út; hann reyndi að róa til lands, en gat ekki á- unnið, því hann átti að sækja móti stríðu sjávarfalli. Á endanum varð liann svo þreyttur að hann datt út af og sofnaði. Þegar norska skipshöfnin hitti hann, þá svaf hann svo fast, að þeir gátu með naumindum vakið hann. Þeir vörpuðu streng niður til lians, sem hann átti að taka í, svo þeir gætu dregið hann upp í skútuna, en hann var svo örmagna, að hann gat ekki haldið sér, því hann var búinn að vera þrjá daga og tvær nætur á sjónum. Skipstjóriun sagði frá því síðar, að sér hefði fundist, eins og hann vera til knúð- ur að sigla í þessa átt, sem drengurinn var, og að lítilli stundu liðinni kom hann auga á bátinn í kíki og drenginn sofandi í honurn. Þetta er eilt dæmi þess, að guð heyr- ir bænir þeirra, sem reiða sig á liann. Prentsmiðjan Gutenberg.

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.