Æskan

Volume

Æskan - 01.07.1908, Page 2

Æskan - 01.07.1908, Page 2
50 Æ S K A N búnu tekur maður þessi aó æpa og skrækja og láta öllum illum látum; og bregzt það þá varla að innan stundar koma tígrisar einn eða ileiri í ljós; því þeir beyra allra dýra bezt. Þeir ráð- ast nú að búrinu þegar þeirsjámann- inn, og reyna að rifa sundur bumus- arstengurnar. En meðan þeir eru að því, getur maðurinn komið sér fyrir með spjótinu og sært dýrið eða dýrin. Til tryggingar er spjótsoddurinn oft eitraður; og líður þá sjaldan langtunz það fellur óvigt. 1 Indlöndum eru tígrisaveiðar mest tiðkaðar; og þykir þar liið mesta kall- menskumerki að fella trígrisdýr að velli. Verður þaó til þess, að jafnvel æðslu höfðingjar leggja stundum sjálfir á tígrisaveiðar; og hafa þeir þá að jafn- aði viðhafnar-útbúning mikinn, oft fjölda af fílum með skotmönnum á og lieilan sæg af veiðihundum, sem eiga að hanga á tigrisnum til að stöðva hann meðan verið er að koma á hann skoti; enn fremur hornablástursmenn og trumbuleikara til þess að tælatígr- isinn fram. Sjálfir silja liöfðingjarnir á úlfalda eða fíl; og er hylst svo lil að þeir geli komið bana-skotinu á tígrisinn. Stundum liala höfðingjarnir uppáhaldskonur sínar með sér akandi i lokuðum vögnum; og skemta þær sér við að horfa á veiðina. — Einmitt þannig var hagað hinni miklu lígrisa- veiði, sem landshöfðinginn í Oude á Indlandi héll fyrir nokkrum árum síðan. Hann hai'ði með sér állan urm- ul af alskonar tömdum veiðidýrum, svo sem: veiðihundum, tömdum par- dusdýrum, sem noluð voru til veiða, fálkum, víg-hönum o. s. frv. Enn frem- ur hafði hann á þriðja hundrað 1‘íla, og sat á þeim allur fjöldi af skotmönn- um. Bumbusláttarmenn og hornaleik- arar voru og fjölda margir með í för- inni, sömuleiðis konur úr kvennabúri landshöfðingjans, söngkonur, leikarar o. s. trv. Þegar fyrsta tígrissins varð vart, var fyrst sigað á hann hundun- um, og hinum tömdu pardusdýrum slepl lausum til að kljást við hann. En þegar fílarnir nálguðust, reif hann sig lausan, og tók sig í einu stökki upp á bak eins fílsins til þess að ná í mennina. En fíllinn hristi skrokkinn voðalega, svo að bæði féll niður tígr- isinn og allir skotmennirnir, sem á sátu; og héldu allir að nú væri úti um þá. En lil allrar lukku tóksl hundunum og pardusdýrunum að vefj- ast svo fyrir tigrisnum, að honum tóksl ekki að bana mönnunum. Umkringdu fílarnir hann nú og, svo að komið varð á liann skotum. Að síðuslu féll hann fyrir skoti landshöfðingjans sjálfs. -- Þegar þessi tigris var að velli lagður hélt veiðiíörin áfram lengra norður um slétturnar og skógana; og var á þann hátt Ijölda tígrisa banað i íörinni. Illa tekst að temja tígrisdýr, og als ekki nema þau séu tekin smá-ungar, enda verða þau og aldrei tamin eins vel og önnur villidýr, t. a. m. ljón; til þess eru þau oi ótrygg. Þó eru þess dæmi, að tígrisar hafa verið tamdir, og

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.