Æskan - 01.11.1908, Page 1
ÆSKAN
BARNABLAÐ MEÐ MYNDUM
XI. árg.
Eignarrétt hefir:
St.-Stúka íslands [I.O.G.T.]
Rv í k. N ó v . 19 0 8.
Ritstjóri:
Ir. Friðriksson.
20—2l.tbl
Hlýðni.
»At' hlýðninni má pekka þá,
Sem pjóna Droltni vilja;
Par hetjur sterkar Ilerrann á;
Pvi hlutverk sin pær skiljacc.
Þannig stendur i gömlum sálmi. Jeg
held að öll börn langi til þess að vera
»sterkar hetjur«, en til þess verða þau
að temja sjer hlýðni. Hlýðnin er líka
mikill blessunarvegur. Abraham fjekk
mikla blessun sökum hlýðni sinnar.
Fjórða boðorðið, sem talar um að
heiðra foreldrana gefur fyrirheit. Eng-
inn sem er óhlýðinn getur rjettilega
heiðrað föður eða móður. Þessvegna
er hægt að segja að fjórða boðorðið sje
um hlýðni. »FIlýðni er betri en fórn!«
sagði Samúel við Sál konung, þegar
hann var að færa drottni gjafir en
var þó óhlýðinn guði. Mörg börn vilja
færa foreldrum sínum jólagjöf, en slík-
ar gjafir eru ekki mikils virði ef börn-
in vantar hlýðni. Hlýðni er betri en
stór jólagjöf.
Ennfremur verður aldrei sá góður
að stjórna, sem ekki kann að hlýða.
Eitt af því, sem gjörði Rómverja
svo volduga var það, að þeir kunnu
nianna bezt að hlýða.
Sá sem lærir að hlýða guði, sá verð-
ur líka hlýðinn bæði við foreldra sína
og rétta yfirboðara, í öllu því sem
rjett er.
En fremur ber að hlýða guði en
mönnum. Þegar menn skipa það, sem
er rangt og móti guðs boði, ber ekki
að htyða því.
Jóset var hlýðinn lnisbændum sin-
um i öllu nema i þvi, sem var synd
móti guði. En við hlýðnina við guð
fann hann veg upp að hásæti konungs.
A bæ einum hjer á íslandi vareinu
sinni kona, sem átti 3 syni. Hún var
ekkja og hjó með manni, sem var
ráðsmaður hennar. Þaubjuggu á bæ,'
sem var mjög afskektur. Þau stálu
miklu af fje úr afrjettinni. Yngsli son-
ur ekkjunnar vildi aldrei taka þátt í
þessu athæfi. Hann vildi heldur hlýða
guði. Eftir nokkur ár komst allt sam-
an upp og öllu hyskinu var hegnt
harðlega nema þessum dreng, þvi það
kom í Ijós, að hann hafði aldrei tekið
hendi til stuldanna, Honumvarkom-
ið fyrir á góðan bæ og varð seinna
góður bóndi í sveit sinni.— Hannvar
hetja.
Ef þið viljið sjá hvernig hlýðnin við
guð hefur gjört menn að »sterkum