Æskan - 24.12.1910, Qupperneq 10
VIII
JÓLABLAÐ ÆSKUNNAR
1910
ÚN Rikka frænka býr í litlu
húsi langt vestur í bæ.
Það væri ekki ósennilegt,
að lienni leiddist að vera
svona einmana. En hún á
marga vini, bæði systur- og
bróðurhörn, sem oft koma lil hennar.
Og ætíð er hún viðbúin að taka á móti
þeim með vingjarnleik í orði og viðmóti,
og — það sem ekki er minst í varið:
hún á jafnan góðar heimabakaðar kök-
ur i pjáturbauknum í skápnum sínum.
Það fer heldur en ekki að liýrna yfir
litlu gestunum, þegar Rikka frænka
opnar skápinn og tekur út baukinn,
því þá vita þeir hvað í vændutn er.
Já, Rikka frænka er gjafmild og hug-
ul. Engan vill liún láta írá sér fara,
fyr en liún er búin að gleðja hann á
einhvern liátt. Hafi hún elcki börnin
að gleðja, eða einhvern fátæklinginn, þá
beinir hún hugulseminni til litlu fugl-
anna, sem koma að glugganum á hús-
inu liennar. Meðal þeirra á hún marga
vini. I3eir eiga svo gott friðland hjá
glugganum hennar, og tína með fögnuði
brauðmylsnuna, sem hún fleygir út til
þeirra úr bauknum sínum.
Aldrei er Rikka frænka svo þreytt eða
döpur í bragði, að hún leiki ekki eins
og á alsoddi af ánægju, þegar litlu
gestirnir hennar koma, og leitist við að
gleðja þá á alla lund, — livort sem þeir
eru í kjólum eða buxum, eða með
vængjum.
En — stundum andvarpar hún svo
þungan og mæðilega. Og þó er hún
ætíð jafn vingjarnleg, og veit ekki hvern-
ig liún á sem hezt að gera við gesti
sína.
Stundum hafði það borið við áður
fyr, að hún bar vín á borð, þegar mik-
ið var um að gera. En nú kom það
aldrei fyrir. Og það var af völdum
Friðriks litla, frænda hennar, að hún
liætti þvi. Ekki svo að skilja, að hún
væri honum gröm fyrir það — síður en
svo; nei, hún unni honum enn meira
upp frá þeim degi.
Hann var bróðursonur hennar, hann
Friðrik litli, og var á tíunda ári er þetta
gerðist. I3að var á aðfangadag jóla.
Friðrik var sendur til frænku, til að
bjóða lienni að koma yfir til pabba
hans og vera þar um jólanóttina, eins
og venja var til.
— Ósköp finst mér vera langt síðan
þú komst til mín síðast, nrælti Friðrika;
ég hélt að þú værir alveg búinn að
gleyma henni Rikku frænku. En nú