Æskan - 01.08.1912, Side 8
64
ÆSKAN.
DÆGRADYOL.
1. Tveir menn mættust og ráku sinn f'jár-
hópinn hvor. Ávarpar þá annar hinn
og segir: »Láttu mig hafa eina kind, svo
aö við eigumjafnmargar«. Hinn svarar:
»Nei, lát þú mig heldur fá eina úr þín-
um hóp, svo aö ég eigi helmingi íleiri
en þú«. — Ilvað voru margar kindur í
hvorum hóp?
2. Hvert er það steinbúr,
sem gefur af sér regnskúr?
3. Hver er sú hin yzta,
alveg eins og kista?
Iienni verður up]> lokið,
en aldrei aftur látin
eins og hún var í fyrsta.
4. Gamall maður lá banaleguna. Hann lét
kalla til sín sonu sína 3 og sagði við þá:
»Alciga mín, sem ég eftirlæt ykkur, synir
mínir, er 17 hestar. I5ið eigið að skifta
þeim svo á milli ykkar, að elzti bróðir-
inn fái helming þeirra, mið-bróðirinn
þriðjunginn ogsáyngsti níunda partinn«.
En þegar þeir ælluðu að fara að skifta
í helminga, gátu þeir það ekki, nema
með því að skifta einum hestinum í
tvent, en það vildu þeir ekki gera. —
Peir fóru þá til manns eins, sem þótti
ráðsnjall og skarpvitur, og báðu hann
að leggja sér ráð í þessu vandamáli. —
Þegar hann hafði hugsað málið um stund,
sagði hann: »Ég á 1 hest og skal gefa
ykkur hann, svo að þið eigið 18 til skifta.
Sá elzli tók nú lielminginn (9), annar
þriðjunginn (6), og sá yngsti níunda hlut-
ann (2). Pá sagði kunningi þeirra: »Nú
hafið þið allir fengið meira en þið áttuð
að fá og þó gengur 1 hestur af, sem ég
ætla að eiga fyrir ráðið og hjál])ina«. —
Hvernig á að sldlja þetta?
5.
6.
7.
Um mig hugsa ýmsir mikið,
ann mér maður liver og einn.
En ef nafni við er vikið.
verð ég kaldur, harður steinn.
A sjávarljóni og söðladýri sá ég prýði;
sama nalnið lýtir lýði.
Eg er ekki danskur maður
og þetta er ekki nafnið mitt,
heldur nafnið á sveitinni
minni — stöfunum að eins ruglað. Ilvað
lieitir hún?
Hr. Agesen.
Orðsendingar.
Munið eftir að borga Æskuna.
Friðrik Guðjónssonl Gáturnar þínar eru
svo kunnar, að gagnslausl er að birta
Íiær, og mannanafnagáturnar svo ó-
ullkomnar, að þú verður að vanda
þig betur næst.
Anna Á. Jónsdóttir! Sagan »Fegursta
rós heimsins« er nýlega prentuð á ísl.
í Ætintýrum H. G. Andersens og verð-
ur þvi ekki tekin í blaðið. »Svanahr.«
er komið og »Hassan« kemur síðar.
Framtið Æskunnar er að miklu leyti
komin undir þvi, að styrktarmenn
hennar reynist henni vel. Einn þeirra,
sem hingað til hafa styrkt hana bezt,
er hr. Kristján Pálsson á Ytri-Bakka við
Eyjafjörð, er hefir um 30 kau])endur.
ÆSKAN
keinur út einu sinni í inánuði, tvö tölublöð í senn, og
auk þess jólablað, 25 blöð alls. Kostar 1 kr. 20 a. árg.
og borgist fyrir 1. júli. Sölulaun ‘/5 af 5 eint. ininst.
Útsendingu og innlieimtu annast Sigurjón Jónsson,
til viðtals á Laugavcgi 63, kl. 9—10 og 2—3 daglega.
Utanáskrift til blaðsins með póstum;
_____________ÆSKAN. Pósthólf A 12. Rvik._______
Eigandi: Stórstúka íslands (1. O. G. T.).
Utgefendur:
Aðalbjörn Stefánsson og Sigurjón Jónsson.
Prentsmiðjan Gutenberg.