Æskan

Volume

Æskan - 01.02.1927, Page 8

Æskan - 01.02.1927, Page 8
10 Æ S K A N. Aðvörun. ftiufarandi smásögu segir lækn- ir einn, Gordon Stables að nafni: Ungur piltur, Jakob að nafni, hafði verið mjög veikur og spurði lækn- inn: „Var ég kominn að dauða, læknir?“ „Já, því sem næst. Þú hefir alls ekki þolað þessar miklu vindlingareykíngaf“. „Það getur þó ómögulega verið álit yðar, að þessir meinlausu vindlingar séu skaðlegir fyrir unga drengi?" sagði Jakob. Læknirinn sagði honum, að sjúkdóm- urinn hefði ekki bugað hann eins og hann gerði, ef hann hefði ekki reykt svo mikið af vindlingum og hætti svo við: „Vindlingareykingar eru einn hinn skæðasti óvinur æskulýðs vorra tíma. Um 100 kílómetra héðan er grafreitur, sem aldrei hefði þurft að verða til, ef drengirnir, sem þar eru grafnir, hefðu aldrei reykt vindlinga. Það út af fyrir sig, að þcir reylitu, var ekki orsök- in í dauða þeirra. En það veiklaði þá svo, að þegar þeir urðu veikir af ein- hverjum alvarlegum sjúkdómi, þá höfðu þeir ekki nægan viðnámsþrótt. Það var nú auðvitað þeim fyrir beztu að fá að deyja, því þeir hefðu aldrei getað orðið annað en veildaðir og vesalir menn“. „Stendur tóbakið í vegi fyrir vaxtar- þroska drengja?" spurði Jakob. „Því spyr þú svona, drengur? Sér þú ekki næg dæmi þess deginum ljósari. Vindlingareyking veiklar og sljóvgar starfsemi hjartans, svo það he.fir ekki afl til að færa ýmsum pörtum líkamans nægilega mikið hlóð. Auk þess verður blóð það, sem hjartað á að starfa með, óheilnæmt, vatnsblandað og óhreint. Þú ert hvítur eins og skæni sjálfur, Jakob, og vöðvar þínir magnlausir. Ef þú held- ur áfram vindlingareykingunum, þá verður þú aldrei að manni“. „Scgðu ekki meira!“ æpti Jakob. „Ég ætla að liætta að reykja. — Frá þessari stundu reyki ég ekki einn einasta vind- Iing“. —■ Og hann stóð við orð sín. DÆGRADVÖL. m Táknamál. Nafnagáta. 2. A A A A A A Raðið þessum stöfum þann- A Á I) F F G ig, að efst verði kvenmanns- í í L L L N nafn, og ef linurnar eru svo N N N Ó R Ö lesnar niður eftir, komi út 6 kvenm.nöfn (þar af tvö stuttnefni). — Dís. Eins, og þó annað. 2. Bóndinn á Gili, sem var hár maður og slána- legur, hafði íofað hóndanum á Grund, að lána honum mann eina viku um sláttinn. En þegar til kom sveik hann það. Þá sagði . Grundarbóndinn: „Þessi — svifti mig alveg þessu —“. A. S. 4. Það var —• á túninu og þá tók hún — hana. G. 1. A. Kóngagáta. 5. Fjórir konungar stjórna einu ríki samtimis, og þá má nœrri geta, að órói sé í því ríki. Að vísu eru þeir latir, en í hvert skifti, sem þeir hreyfa sig, er það til þess að heyja stríð. Bj. G. „ F A N N E Y Öll heftin 5 í skrautbandi fást nú send út um land gegn 7 kr. póstkröfu. Sömu- leiðis 3 þau fyrstu í kápu á 1 kr. hvert. Aðalbjörn Stefánsson, Gutenberg, Reykjavík. Útgefandi: Sigurjón Jónsson. Prentsmiðjan Gutenberg.

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.