Æskan

Árgangur

Æskan - 01.03.1927, Síða 1

Æskan - 01.03.1927, Síða 1
XXVIII. arg. Reykjavik Marz 1927. 3. blað. Próf. Sveinbj. Sveinbjörnsson tónskáld. Hinn 23. febrúar s. 1. andaðist í Kaupmannahöfn sá maður, sein óhœtt er að telja víðfrægast- an allra Islendinga, pró- fessor Sveinbjörn Svein- björnssón tónskáld. Lík hans var flutt hingað heim á kostnað ríkissjóðs og jarðsung- ið hér í Reykjavík hinn 22. þ. m. með mikilli lotningu og viðhöfn, eins og sæmdi mætasta og merkasta tónlistar- manninum, sem þjóð vor hefir átt, enn sem komið er. Próf. Sveinbj. Svein- lijörnsson var fæddur 28. júní 1847 að Nesi við Seltjörn í Gull- bringusýslu. Hann var sonur Þórðar Svein- björnssonar háyfirdómara og konu hans, Kristínar Knudsen. Að loknu stúdentsprófi 1866 las hann guðfræði og útskrifaðist al' prestaskólanum í Reykjavík árið 1868. En hugur hans hneigðist snemma að söpg og hljóðfæraleik, og því lagði hann leið sína af landi burt þegar að afloknu prófi, til þess að afla sér l'rekari mentunar í hljómlist en unt var að fá hér á landi. Dvaldist hann svo erlendis inegin- hluta æfi sinnar, lengst af í Edinborg á Skotlandi, og þar kvæntist hann eftirlif- andi konu sinni. Árið 1922 samþykti Alþingi að veita hon- um heiðurslaun og flutti hann þá hingað heim, en rúmu ári síð- ar fór hann til Iíaup- maniiahafnar í þeim tilgangi að koma tón- verkuin sínum á prent og varð honum nokk- uð ágengt í því efni. Dvaldi hann þar þang- að til hann lézt, eins og áður er sagt. Fæstir lesendur Æsk- unnar hafa séð próf. Sveinbj. Sveinbjörns- son sjálfan eða þekt hann persónulega og því sýnir ,,Æsk- an“ ykkur nú mynd af honum með þessum línum; en ég cr þó viss um, að þau eru fá, börnin á íslandi, sem ekki kannast við nafn hans og harma burtför hans nú, er þau heyra lát hans. Hvað veldur því? síðari

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.