Æskan - 15.12.1928, Blaðsíða 27
JÓLABLAÐ ÆSKUNNAR
=£>©(L=
©
Þrenn verðlaun.
6=
1?
Barnablaðið »Æskan« hefir ákveðið að veita þrenn verð-
laun næsta ár fyrir kaupendafjölgun, auk venjulegra sölulauna.
1. Sá sem útvegar 50 nýja kaupendur fær góða myndavjel.
2. — — — 30 — — — lindavpenna.
3 — — — 20 — — — 10 eldri árg. af
»Æskunni«, innhefta. Þá fá þeir, sem útvega 5 nýja kaup-
endur, einn eldri árg. blaðsins í kaupbæti, en fyrir 6—10
kaupendur 2 árg. o. s. frv.
Auk þess sem hjer hefir verið skýrt frá, eru hin venju-
legu innheimtulaun útsölumanna, sem eru 20°/o af 5—20
kaupendum, en 25°/o til þeirra, sem hafa yfir 20 kaupendur.
Þá fá allir nýiv kaupenduv blaðsins 2 síðustu Jólabækur
»Æskunnar« eða næstsíðustu Jólabækur hennar um leið og
þeir borga blaðið
Jólabókin síðasta er seld í lausasölu á 1 krónu eintakið.
Eldri Jólabækur á 50 aura eintakið.
En alt er þetta því skilyrði bundið, að staðið sje í skilum
með borgun á rjettum gjalddaga, sem er 1. júlí ár hvert.
Argangurinn kostar kr. 2,50.
Þá hefir yfirmaður Unglingareglunnar hjer á landi, herra
Magnús V. Jóhannesson, heitið þeim barnastúkum, sem útvega
50 nýja kaupendur, sjerstökum verðlaunum, embættismanna-
einkennum eða fána.
Takið strax til starfa og safnið mörgum nýjum kaupendum.
Látið afgr. vita, ef þið fáið ekki kaupbætinn með skilum.
Afgreiðsla „Æskunnar“ er í Hafnarstr. 10 (Edinborg).
TUkynnið afgveiðslunni tafarlaust, ef vanskil verða á blaðinu.
1»
©
(n>
4