Kyndill - 01.03.1934, Síða 7
Rikisauðvald
ríkisreksiur
Kyndill
á mörgum sviðum viðskifta og framleiðslu vegna
heimskreppunnar.
| Hvernlg skýram
vltt rlklsvald f
Karl Marx segir, að tímaskifti eða aldahvörf auð-
valdsins lýsi sér með því, að „vinnuaflið, starfsorka
verkalýðsins, breytist í vitund hans í þá átt að verða
vara, verðmæt vara, sem tilheyri honum. Vinna hans
verður þvi launavinna."
Allt til þessa hefir auðvaldið verið í mynd einkaauð-
valdsins. Einstakir auðmenn hafa átt og stjórnað fram-
leiðslutækjunum, — svo sem verksmiðjum, fiskiskipum
o. fl. að ógleymdum yfirráðum þeirra á jörðinni sjálfri.
t Séð frá sjónarmiði jafnaðarstefnunnar verður skipu-
lag ríkisauðvaldsins þannig: Vinnan heldur áfram að
vera vara, og verð hennar (vinnulaunin) verður mjög
háð því, hver er geta eða gjaldþol hvers einstaks fyrir-
tækis, þar sem launavinnan verður að mestu óbreytt,
en ríkið ræður, hefir eftirlit með eða á mikinn hluta
framleiðslutækjanna, og tekur í sínar hendur nauðsyn-
legt fé í varasjóð. Ríkisauðvald eða ríkisrekstur er alls
ekki varanlegt þjóðskipulag, en að eins stundarfyrir-
komulag skipulagsbreytinga. Þess vegna mun það ekki
verða fast né samræmt í sniðum, heldur þvert á móti
fjöldi innri mótsetninga. Sovét-Rússland er spegilmyncf
vissrar tegundar ríkisauðvalds þjóðfélagsins.
I Sovét-Rússlandi er það ríkið, sem á eða ræður yfir
framleiðslunni og fjármagninu og leggur til hliðar 40°/o;
5