Kyndill - 01.03.1934, Qupperneq 15
Ríkisauðvald
ríkisrekstur
FCyndill
aö framleiðslan eigi að vera notuö og skipulögð með
pörf alls mannkynsins og betri lifskjör fyrir augum en
alger andstæða við áðurnefnda grundvallarsetningu ein-
staklings- og eigin-hagsmunanna. Kenningar einka-auð-
valdsins og reglur eru þær, að fyrirtækin eða fram-
leiðslan sé undir stjórn óháðra atvinnurekenda, án
allrar ihlutunar eða eftirlits frá ríkinu. Einstaklingarnir
séu að eins ábyrgir gagnvart sjálfum sér um fjárhags-
lega heppni sína eða óheppni.
En grundvöllur ríkisrekstrar er að fyrirtækjunum sé
stjórnað samkvæmt óskuin þjöðarinnar og með ábyrgð
gagnvart pjóðinni, jiannig ,að fjárhagsleg stjórn sé í
fullu samræmi við lýðræðiskröfur og stefnu í fjárstjórn
ríkisins.
Einka-auðvaldið leiðir ekki fyrirtækin eftir skipu-
lögðu mati og virðingu ineð hliðsjón af óskum og
þörfum þjóðarinnar, heldur eru allar ákvarðanir gerðar
eftir ákvörðunum fárra „spekúlanta", er eingöngu miða
alt við eigin hagsmuni, ágóðavonir. En frá sjónarmiði
þjóöfélagsins þarf að gera allar slíkar ákvarðanir eftir
skipulögðum reglum, er gagna þjóðinni í heild, — sú er
stefna jafnaðarmanna.
Undir skipulagi rikisauövaldsins munu þessar höfuð-
reglur verða þráfaldlega brotnar, en línurnar skýrast
smám saman, þrátt fyrir innri mótsetningar, sem vaxa
innan fiessa skipulags, eins og áður er sagt.
Ríkisauðvaldið — ríkisreksturinn — eykur pólitísk
áhrif á fjármálasviðinu, þ. e. a. s. gætir hagsmuna
fleiri en þeirra, sem að eins snerta hið þrönga svið eíns
13