Kyndill - 01.03.1934, Blaðsíða 19
KyndiW
Kolbelim
gamll
Gðftu-
hrelnsarlnn
Hann hafði verið skýrður Porlákur Ólafur og var
Lárusson. En hann var nú aldrei kallaður annað en Láki
garnli og kunni því fjarska vel. Hann tilheyrði þeirri
stétt manna, sem litla tilhneigingu hafa af ofmiklum
titlum og tómri hégómagirnd. Honum var sjaldan heils-
að með miklum hneigingum, djúpum ofantökum eða
hræsnisfullu brosi. Hann mundi ekki eftir á allri sinni
löngu og erfiðu lífsleið að nokkur maður hefði borið
fram nafn hans með eins miklum fjálgleik og hátíðleik
eins og blessaður presturinn, þegar hann fermdi hann
og hneppti hann í hjónabandið með henni Maríu hans,
sem hafði nú! í blíðu og stríðu stritað við að létta hon-
um lífið og gera honum það ánægjulegra með því að
fæða honum fimm börn, er aldrei fengu fylli sína.
Laun hans náðu skamt til fæðis, hvað þá til kiæðis.
Láki gamli var götuhreinsari í höfuðborginni. Þið getið
máske getið ykkur til, hve þess konar störf eru vel
borguð i þessum dýrðarheimi réttlætisins og mann-
kærleikans.
Ég ætla ekki að fara aö lýsa honum Láka gamla
fyrir ykkur. Þið þekkið alt of vel þessa hryggðarmynd
2
17