Kyndill - 01.03.1934, Qupperneq 35
Kyadill
ÓháOi enskl verkamannaflokk-
nrfinn aVnefitar kommáni&tuni
Hinn óháði enski verkamannaflokkur hélt ársþing sitt
núna um páskaleytið eins og undanfarin ár. Það, sem
hefir einkent starf flokksins síðastliðið ár, eru tilraún-
irnar til samvinnu við kommúnistana eða hin svo-
nefnda „samfylking“. Ársþing flokksins í fyrra gaí,
eins og kunnugt er, flokksstjórninni skipun um ,að
reyna að ná einhverri samvinnu vib kommúnistaflokk-
inn, að svo miklu leyti sem hægt,væri án þess að vera
honum háður. Nú hefir flokkurinn fengið dýrkeypta
reynslu fyrir því, hve mikið er að byggja á gaspri
kommúnistanna um samfylkingu og samvinnu.
Stjórn flokksins hefir nú í heilt ár striðað við að
semja við þá um samvinnu, en alltaf hafa þeir samn-
ingar strandað á andúð þeirra og órækni.
Þessa reynslu hafði ársþiqgið nú til meðferðar. Var
hún helzta þrætumál þingsins, og skiftust fulltrúarnir ví
flokka eftir afstöðunni til þess. Það þótti athyglisvert,
að foringi flokksins, James Maxton, tók enga afstöðu
til þeirra deilumála, sem fyrir þinginu lágu, í setning-
arræðu sinni. Aftur á rnóti lýsti hann þeirri andúð, sem
nú ríkti gegn ensku stjórninni og alltaf ,væri að auk-
3
33