Kyndill - 01.03.1934, Qupperneq 46
Kyndill
Giacoino Matteotti:
nnúir likrœðu eftir mig.“ Nokkrutn dögum síðar komu
orð Matteottis fram. Þann 10. júní hvarf Matteotti,
án fiess nokkur vissi hvaö af honum hefði orðið.
Það kom þegar upp kvíði hjá öllum vinum hans. Orö
hans við vin sinn, Cosattini, komu upp, í hvers manns
huga. Fréttir frá heimili hans upplýstu það, að Mat-
teotti væri horfinn, án þess að nokkur vissi hvað af
honum hefði orðið.
Mussolini leyzt ekki á blikuna. Vinsældir Matteottis
voru miklar, og gremja manna á meðal var mikil.
1 Jtinginu hélt hann ræðu, þar sem hann sagði: „Signor
Matteotti mun bráðum koma aftur og verða einn á
meðal vor.“ —
Þá kvað við rödd í salnum: „Hann er þá dáinn."
Kváðu þá við gremjuóp um allan salinn. Mussolini
reyndi að sefa fjöldann með því að tala nokkur hug-
hreystingarorð, en þá var aftur hrópað: „Hann tal-ar
og er því meðsekur."
Síðar sannaðist að þessi orð voru rétt. Mikill vinur
Mussolinis, Dumini, ásamt fjórum öðrum fascistum
höfðu samkvæmt fyrirskipun Mussolinis tekið Matteotti
upp í bíl og keyrt hann afsíðis til skógfláka fyrir
norðan Róm og myrt hann þar. Þann 16. ágúst sama
ár fundu nokkrir verkamenn lík Matteottis dysjað i
nánd við Quaderella, skamt norðan við Rómaborg.
Líkið var nær óþekkjanlegt sökum hnífstungna og
illrar meðferðar.
Með fráfalli Matteottis var andstaðan gegn stjórn-
inni að miklu leyti brotin á bak aftur. Enginn var
44