Valsblaðið - 01.07.1958, Blaðsíða 3
r
VHLSBLFiÐIÐ
Útgefandi: Knattspyrnuíélaglö Valur. - Félagsheimili, íþróttahús og leikvellir aö Hlíðarenda við Laufásveg. - Ritstjórn: Einar Björnsson, Frimann Helgason og
Ólafur Sigurðsson. - Auglýsingastjórar: Friöjón Guöbjörnsson og Hermann Hermannsson. - ísafoldarprentsmiðja h.f.
^_______________________________________________________________________________________________________________________________________________J
Heimistókn
til séra Friðriks Friðrikssonar, nírœðs
Svo. sem alþjóð er kunnugt,
varð séra Friðrik Friðriksson 90
ára s. 1. Hvítasunnudag.
„Jeg er fæddur að Hálsi í
Svarfaðardal þ. 25. maí 1868.
Mjer þykir ávalt mikið til þess
dags koma, ekki af því að hann
er fæðingardagur minn, heldur af
því að þá var ég skírður, nokkr-
um mínútum eftir að jeg fæddist.
Var það fyrsta og stærsta vel-
gjörðin, sem jeg hef hlotið á æfi
minni. — Skírnin var seinna
staðfest af sóknarprestinum sjera
Páli sálmaskáldi Jónssyni á Völl-
um (seinna að Viðvík í Skaga-
firði).
Foreldrar mínir voru þau hjón-
in Friðrik Pjetursson og Guðrún
Pálsdóttir, og var ég fyrsta barn
þeirra. Faðir minn var ættaður
úr Hjaltad.al í Skagafirði. Hanti
hafði lært skipasmíðar og stund-
aði þær um stund, en lagði síðar
fyrir sig húsagjörð og kirkju-
smíðar. Hann var sagður mikill
hagleikamaður, bæði stórvirkur
og vandvirkur. Jeg erfði ekki
þenna hagleik, því jeg hef aldrei
getað tálgað óskakkan hrífutind".
Þannig byrjar séra Friðrik æfi-
sögu sína — Undirbúningsárin —
sem út kom árið 1928.
Blásnauður af þessa heims
gæðum og vinafár lagði hann út
á menntabrautina, varð stúdent
árið 1898 og á því 65 ára stú-
dentsafmæli um þessar mundir.
Las síðan málfræði um hríð
við Kaupmannahafnarháskóla og
cand. phil. þaðan, en las síðan
guðfræði við Prestaskólann í
Reykjavík og útskrifaðist úr
honum aldamótaárið. Árið áður
hafði hann stofnað Kristilegt fé-
lag ungra manna hér í bænum,
en þeim félagsskap hafði hann
kynnst og verið þátttakandi í á
námsárum sínum í Kaupmanna-
höfn. Með stofnun KFUM og for-
ystu sinni þar hefur séra Frið-
rik reist sér lifandi og óbrot-
gjarnan minnisvarða. Ungur tók
hann þá ákvörðun að helga líf
sitt þeirri háleitu hugsjón, að
vinna unga menn til fylgis við
Guð, og með óbilandi kærleika og
fórnfýsi hefur honum orðið mik-
ið ágengt í starfi sínu. Frá því
um aldamótin hefur hann, í huga
þjóðarinnar, verið hinn mikli
leiðtogi æskunnar í landi voru.
Þúsundum saman hafa ungir
menn, á liðnum áratugum, heill-
ast af trúfesti hans og umburð-
arlyndi, afburða gáfum og for-
ingjahæfileikum, sem eiga fáa
sína líka. Kristin trú og boðun
hennar hefur verið alfa og omega
lífs hans, og í því sambandi hef-
ur m. a. frjálslynd trúfesti hans
og glöggur skilningur á mannlegt
eðli borið foringjanum fagurt
vitni, þar sem ýmsir þættir dag-
legs starfs og leika í lífi ungra