Valsblaðið - 01.07.1958, Page 4
4
VALSBLAÐIÐ
Formaður Vals ávarpar séra FriSrúc
manna hafa verið nýttir til þess
að vinna þá fyrir Guðsríki, eins
og t. d. íþróttirnar. En séra Frið-
rik var fljótt Ijóst stórfenglegt
uppeldisgildi íþróttastarfseminn-
ar, og það væri mikill misskiln-
ingur að slík starfsemi gæti ekki
samrýmst kristilegu lífi, ef rétt
væri á haldið. íþróttastarfið hef-
ur því jafnan átt fylgi að fagna
innan KFUM. Stofnun Vals er
einn þáttur þeirrar starfsemi. og
Valsmenn, ungir og gamlir, minn-
ast nú með þakklæti og virðingu
handleiðslu séra Friðriks á liðn-
um árum og sívakandi áhuga
hans á störfum Vals og vel-
gengni, hverju sinni.
Á fundi stjórnar Vals hinn 10.
maí s. 1. var samþykkt að félagið
skyldi minnast 90 ára afmælis
séra Friðriks, með sérstökum
hætti. Tillaga stjórnarinnar var
sú, að Valsmenn, eldri og yngri,
skyldu hinn 25. maí kl. 1.30 e. h.
safnast saman á Arnarhóli og
ganga þaðan fylktu liði til bæki-
stöðva KFUM við Amtmannsstíg,
en þar býr séra Friðrik, hylla
hann og tilkynna honum, að fé-
lagið hefði samþykkt að stofna
sjóð til þess að standa undir
kostnaði við að reisa af honum
myndastyttu á félagssvæði Vals
að Hlíðarenda. Rúmlega 100 Vals-
menn mættu, úr öllum flokkum
félagsins. Gengu þeir Hverfis-
götu, Lækjargötu og Amtmanns-
stíg, tóku sér stöðu í porti húss-
ins, en formaður félagsins og for-
maður fulltrúaráðsins, þeir
Sveinn Zoega og Ólafur Sigurðs-
son, ásamt heiðursfélögunum,
þeim Axel Gunnarssyni, Guð-
birni Guðmundssyni og dr. Jóni
Sigurðssyni borgarlækni, gengu á
fund séra Friðriks, sem brátt kom
út á svalir hússins og var ákaft
fagnað, en þar flutti Sveinn
Zoega formaður Vals honum á-
varp í nafni félagsins, hann lauk
máli sínu, með því að tjá séra
Friðrik framangreinda samþykkt
félagsins. Að ávarpi formanns
loknu hylltu Valsmenn séra Frið-
rik með ferföldu kröftugu húrra-
hrópi.
Er Sveinn hafði lokið máli sínu,
flutti séra Friðrik mjög snjallt
ávarp, að því búnu var Valsöng-
urinn sunginn, og þessari stuttu
en áhrifaríku athöfn var lokið.
(Bæði ávörpin eru birt hér á
eftir).
Stjórn Vals og heiðursfélagar
gengu síðar á fund séra Friðriks,
en hús var opið þennan dag, og
veitingar miklar og góðar fram-
bornar, sem KFUM og K sáu um.
Var mikill myndar- og rausnar-
bragur yfir móttökum öllum.
Mikill fjöldi fólks heimsótti bæki-
stöðvar KFUM og séra Friðrik
um daginn, m. a. Forseti Islands
og margt annað stórmenni. Séra
Friðrik bárust ýmsar góðar gjaf-
ir og kveðjur, hvaðanæfa að af
landinu og mjög víða erlendis frá.
Alls bárust honum á sjöunda
hundrað skeyta.
Allar þessar kveðjur, gjafir og
heimsóknir voru ljós vottur þess,
hversu miklum ítökum þessi ein-
staki maður á að fagna og þeirr-
ar hylli, sem hann nýtur alls-
staðar, þar sem hann hefur lagt
leið sína um eða starfað. Sér-
staklega bárust margar kveðjur
frá Danmörku, en þar starfaði
hann líka um árabil og stofnaði
m. a. unglingadeild KFUM í
Kaupmanahöfn.
Vér Valsmenn endurtökum
hyllingu vora og þakklæti til
verndara félags vors og leiðtoga,
vér óskum þess, að stefna hans og
andi megi sem lengst ríkja meðal
vor í félagsstarfi voru í heild og
með hverjum einstökum Vals-
manni, hvar sem hann starfar og
stritar á hverjum tíma. Vér vilj-
um reyna að vera minnugir orð-
ann úr 1. Kor. 9.24, sem séra
Friðrik lagði eitt sinn út af í
einni af sínum ágætu ræðum,sem
hann flutti í hópi Valsmanna: Vit-
ið þér ekki, að þeir, sem á skeið-
vellinum hlaupa, hlaupa að sönnu
allir, en einn fær sigurlaunin.
Hlaupið þannig, að þér fáið þau.
E. B.
Sá, sem lætur reka undan
straumnum en á sér ekki sann-
færingu, æðra mark né hugsjón
að leiðarljósi, er vonarpeningur
þjóðar sinnar. Bergmál en ekki
rödd. Án innra lífs er maðurinn
þræll umhverfis síns. Hann er
sem veðurviti, auðmjúkur þjónn
loftþrýstingsins á hverjum tíma.
(Henri Fr. Amiel 1 ,,Start" ársfj.riti Norska íþrótta-
sambandsins um æskulýðsmál.)