Valsblaðið - 01.07.1958, Page 5
VALSBLAÐIÐ
5
Avarp Sveins Zoega, formanns Va/s
Virðulegi heiðursfélagi.
Kæri vinur.
Vér erum hér samankomnir á
annað hundrað Valsmenn, ungir
og gamlir, til þess að hylla vorn
vin og verndara. séra Friðrik
Friðriksson á gagnmerkum tíma-
mótum í æfi hans. En í dag er
séra Frikrik 90 ára að aldri.
t meira en hálfa öld hefur
séra Friðrik verið óumdeilanlega
merkasti og mikilhæfasti æsku-
lýðsleiðtogi þjóðar vorrar.
í nýútkomnu Valsblaði ritar dr.
Jón Sigurðsson læknir ágæta af-
mælisgrein um séra Friðrik ní-
ræðan, þar segir m. a.
„Bjargföst trú og einstök trúar-
gleði, óbilandi kærleikur, fórn-
fýsi og umburðarlyndi ásami; af-
burða gáfum og aðlaðandi per-
sónuleika, hafa einkennt starf
séra Friðriks og heillað ótal þús-
undir ungra manna“.
Er þarna í fáum og skírum
dráttum lýst aðaleinkennum a^sku-
lýðsleiðtogans séra Friðriks, og
hvað það er sem helzt þarf að
prýða þá, sem slík vandaverk
takast á hendur, að leiða æskuna
framá við, til hins sanna lífs og
ljóss.
t hinu margvíslega starfi fyrir
æskulýðinn, varð þessum sér-
stæða og óviðjafnanlega forystu-
manni brátt ljóst gildi íþróttanna
fyrir unga drengi og pilta. Því
var það auðsótt mál við hann, er
nokkrir ungir félagar úr K. F.
U. M. fóru fram á það, fyrir nær
50 árum, að fá að stofna knatt-
spyrnufélag innan K. F. U. M.
Og séra Friðrik gerðist verndari
þessa unga félags, sem smám
saman dafnaði og þroskaðist, og
hann hefur verið verndari Vals
æ síðan. En hann gerði meira en
það. Hann tók sig til og kynnti
sér allt það sem hann gat náð til
um knattspyrnuíþróttina sjálfa,
og augu hans lukust upp fyrir
gildi íþróttarinnar sem stórfeng-
legu uppeldis- og tamningarmeð-
als, eins og hann sjálfur orðar
það á einum stað. Hann skildi
líka, að sérhver íþrótt er því að-
eins holl og fögur, að hún sé
stunduð af drengskap og án eig-
ingirni.
Á heiðursári Vals 1930 fór fé-
lagið í skemmtiferð í Vatnaskóg,
en séra Friðrik prédikaði í Saur-
bæjarkirkju, yfir Valsmönnum.
Þá hélt hann eina af sínum þrótt-
miklu ræðum, þrungna af lífs-
speki og góðum heilræðum til
æskunnar, m. a. sagði hann:
„Leiktu með kappi og fjöri,
en leiktu með drengskap og
fegurð. Leiktu með atorku og
ósérhlífni, en leiktu með full-
komnu valdi yfir sjálfum þér,
án eigingirni og yfirlætis.
Gættu vel að sannleikanum og
vandaðu orð þín og framkomu,
eins og þú værir á heilögum
stað. Það er mannlegt að vilja
vanda sig, þegar ótal augu hvíla
á leik þínum, en mundu, að
einn er ávallt áhorfandi, og það
er GuS, reyndu að leika þannig,
að hann geti glaðst af leik þín-
um. Þetta veri þó sérstaklega
í dag sagt við þig, sem hér ert
á heilögum stað, þú meðlim-
ur „Vals, knattspvrnufélags
KFUM“.
Þessi orð standa í fullu gildi
enn, svo sem þau stóðu, er þau
voru sögð fyrir tæpum 28 árum.
Vér Valsmenn minnumst með
þakklæti, nú á þessum merku
tímamótum, já vér miklumst af
því, hversu ríkan þátt knatt-
spyrnuíþróttin og VALUR hafa
jafnan átt í huga og hjarta hinn-
ar níræðu trúarhetju og kirkju-
höfðingja, og vér getum heldur
aldrei fullþakkað það, hversu vér,
sem félag og einstaklingar, höfum
í ríkum mæli um áratugi fengið
notið mikils áhuga, margþættrar
snilli og hæfileika séra Friðriks.
Vér þökkum Guði fyrir séra Frið-
rik, fyrir störf hans í KFUM,
fyrir störf hans í VAL og hand-
leiðslu. Já, fyrir allt hans mikla
og margþætta forystuhlutverk í
æskulýðsmálum þjóðar vorrar.
Vér hyllum þig með þakklátum
huga.
Ég hef þá ánægju og þann
heiður að tilkynna þér, að í tilefni
af þessu merka afmæli þínu í
dag hefur Valur stofnað sjóð, sem
á að standa undir kostnaði við
að reisa af þér höggmynd á fé-
lagssvæði Vals að Hlíðarenda.
Verður henni valinn bezti stað-
ur á svæðinu, þar sem hún getur
jöfnum höndum minnt oss á þau
órjúfandi bræðrabönd, er vér
Valsmenn erum í tengdir KFUM,
böndum, sem aldrei mega bresta,
um leið og hún minnir oss á þær
hamingjubrautir, er þú hefur á
langri æfi beint æsku Vals og
þjóðarinnar svo farsællega inn á,
með þinni bjargföstu trú og ein-
lægum kærleika til okkar allra.
Vér hyllum þig, kæri vinur,
með ferföldu húrrahrópi.
Þrjár tegundir knatta
Á hverjum velli þar sem heims-
meistarakeppnin fór fram voru
uppblásnir 27 knettir og geymdir
í innsigluðum skáp. Voru þeir af
þrem gerðum. Venjulegir gul-
brúnir knettir, sem nota átti í
góðu og þurru veðri. Plastknettir
í rigningu, og hvítir knettir þeg-
ar leikjunum var sjónvarpað.