Valsblaðið - 01.07.1958, Síða 13
VALSBLAÐIÐ
13
betri mönnum sínum. þá Jón
Björnsson, Inga og Steingrím, sem
ásamt Hans Guðmundssyni hafa
allir sýnt ágæta leiki og vaxið
við hverja raun. „Fall er farar-
heill“, segir máltækið, og ætlar
það að sannast, því flokkurinn
hefur sýnt mikinn áhuga og æft
vel, og er það trú mín, að hóp-
urinn eigi eftir að láta talsvert
til sín taka; áður en sumarið er
á enda. Flokkurinn sigraði Þrótt,
sem hefur ágætu liði á að skipa,
3:1, tapaði fyrir K. R. 1:2, en
átti að sigra þar.
Keflvíkingar sóttu Val heim í
byrjun júní, og gátu Valsmenn
hefnt nokkuð ófaranna í Kefla-
vík með því að sigra 2:1 í ágæt-
um og jöfnurn leik. Knattspyrnu-
félagið Víkingur sýndi félaginu
þann sóma, að bjóða 3. fl. að
leika vígsluleikinn á hinum nýja
velli sínum. Valur sigraði þar
Víking 3:0, og kom það í hlut
Inga að skora þar fyrsta markið
á þeim velli.
Því er ekki að leyna, að liðið
er ekki nógu „þétt“, þar sem
5. ft
Vats
OCj
J.8JC
hinir fjórir fyrrgreindu piltar
„halda því uppi“, eins og
sést á fyrstu leikjunum. Bak-
verðina skortir allmikla leik?ii, og
útherjarnir eru enn ekki nógu
virkir. Helgi markvörður og
Hrafn framvörður hafa eflst við
hverja raun, og er vonandi, að
hinir æfi það vel, að hvergi verði
veikur hlekkur.
B-liðið lék við Ph'am og tapaði,
en Víkingur mætti ekki til leiks.
Margir efnilegir strákar eru í
flokknum, og beztu leikina hafa
sýnt Róbert Jónsson, sem er fyr-
irliði, Sigurður markvörður og
Garðar útherji.
II. flokkur.
Það má með sanni segja að II.
fl. Vals hefur staðið sig bezt allra
flokka félagsins. Flokkurinn vann
Rvíkur-mótið með yfirburðum og
færði félaginu einu verðlaunin á
vorinu.
Liðið er skipað jöfnum pilt-
um, og er hvergi gat í því.
Einstakir leikir fóru þannig:
Valur—Þróttur 2:0. Valur—Vík-
ingur 5:0. Valur—K.R. 2:1 og
Valur—Fram 2:0.
Sá, sem einna mest hefur lcom-
ið á óvart er Egill Árnason, sem
lék í marki og stóð sig með mikl-
um ágætum.
Það iná segja að Egill hafi
vaknað af værum blundi, því
hann lék bakvörð í IV. fl., en
hætti þar til nú. Úrslitalcikinn
lék Egill bakvörð og stóð sig þar
með prýði.
Þrír nýliðar léku með flokkn-
um, Ingi Hjartarson, hinn góð-
kunni handboltamaður, lék í
marki gegn Fram, mátti ekki
leika með Val fyrr en 10. júní.
Kom Ingi skemmtilega á óvart
með leik sínum. Jón Jónsson lék
bakvörð einn leik en varð fyrir
því óhappi að fótbrotna í á-
rekstri skömmu síðar. Ólafur
Jónsson lék tvo leiki við góðan
orðstír.
Vörnin hefur verið all traust.
Hjálmar, Björn og Þorsteinn
fyrirliði, en má þó gæta sín,
þegar við veikari lið er að ræða.
Skúli hefur átt góða leiki, svo
ungur sem hann er, útherjarnir
Helgi, Marteinn og Davíð Helga-
son, hafa allir sýnt skemmtileg
tilþrif, þó hver á sinn hátt. Helgi
Framhald á bls. 14,
REYKJAVlKURMEISTARAR VALS I 2. FLOKKI 1958, Fremri röð frá vinstri:
Marteinn Steinþórsson, Hjálmar Baldursson, Ingólfur Hjartarson, Egill Árnason,
Skúli Þorvaldsson, Aðalsteinn Ing'ólfsson. Aftari röð frá vinstri: Þorsteinn Frið-
þjófsson fyrirliði, Óli Ásmundsson, Matthías Hjartarson, Björn Júlíusson, Berg-
steinn Magnússon, Davíð Helgason og Helgi Magnússon. Á myndina vantar
Ólaf Jónsson.
STARFIÐ 1