Valsblaðið - 24.12.1966, Blaðsíða 31

Valsblaðið - 24.12.1966, Blaðsíða 31
VALUR 29 Gutinar Vagnsson: Hlíðarendi sem uppeldis- og íþróttamiðstöð Ungur drengur kemur suður á Valsvöll — í fyrsta skipti. Þetta vakti máske ekki sérstaklega at- hygli okkar, sem þar vorum við einhver störf, en er ekki dálítil ástæða til þess að geta sér til um, hvað raunverulega var að ske? Þetta er frísklegur strákur, kannske sex til átta ára, ef til vill lítið eitt eldri. Hann er þokkalega klæddur, en það má vera vel þurrt um, ef ekki eru einhvers staðar blettir á fötunum. Og svo eru það skórnir. Það er næstum óbrigðult einkenni, að skórnir á þessum drengjum eru ekki eingöngu not- aðir til þess að ganga á þeim. Hann er rjóður og sællegur, á sjálfsagt gott heimili. Hann er ef til vill með aura í vasanum, alls ekki þessleg- ur, að hann vanti neitt sérstakt. Á sjálfsagt gott heimili, góðan pabba og góða mömmu, og senni- lega á pabbinn bíl nú orðið og það er farið út í sveit á sunnudögum, kannske lengra, jafnvel langt út á land, ef til vill hefur þessi dreng- ur komið út fyrir pollinn. Hvað er hann að vilja hingað? Svarið er ósköp einfalt: Hann langar til þess að leika sér. Þreyta kapp við hina strákana. Reyna sig við boltann, já, það var lóðið: Við boltann. Hann hefur komizt í kynni við þann óstýriláta, hnött- ótta hlut, sem kallaður er knött- ur. Séð hina strákana leika sér að svona bolta og farið að reyna sjálf- ur. Það er ekki hægt að leika sér að svona bolta heima. Til þess eru stofurnar of litlar, meira að segja lóðin, og þar eru kannske falleg blóm og tré, sem pabbi er að vökva á kvöldin. Á götunni er ekki hægt að vera, þá kemur „löggan“ og bannar það. Það er heldur ekki hægt að fá að vera í Hljómskála- garðinum, á Arnarhóli, ekki einu sinni á Miklatúni. Hljómskálagarð- urinn er fyrir fullorðna fólkið, þar situr það á sunnudögum og horfir á endurnar. Á Arnarhóli hefur borgarstjórinn látið setja gang- brautir þvert og endilangt, og út fyrir þær má helzt ekki stíga nema sautjánda júní. Á Miklatúni er verið að skipuleggja fallega trjá- garða, blómabeð og runna, og svo á að byggja þar falleg hús. Þar er ekki hægt að vera lengur. Með öðrum orðum: Jafnskjótt og heimilið er orðið of lítið fyrir þessa ungu drengi, þá virðast öll sund lokuð. Ónei, svo slæmt er það ekki. Strákurinn í næsta húsi hef- ur ráð undir rifi hverju, enda er hann stærri og lífsreyndari. Hjá honum frétti þessi ungi drengur, að það væri hægt að vera í fót- bolta suður á Valsvelli, og því er hann þangað kominn. Sem sagt: Hvort heldur það er litla stofu- kytran fátæka drengsins eða fína stofan þess efnaða, þá hefur hún nú aldeilis tekið stakkaskiptum, og nær nú alveg suður á Valsvöll. Og þá erum við komin að kjarna málsins: Valsvöllurinn er orðinn hluti af heimili þessa unga drengs. Á þessu nýja ,,heimili“ er hon- um vonandi vel tekið. Flesta daga eru einhverjir til þess að segja honum til. Fullorðnu mennirnir í félaginu — í augum þessara pilta eru annars flokks strákarnir hálf- gerðir karlar — skiptast á um að vera þar á kvöldin, og það er skipt í lið og keppt. Ungi drengurinn er heima hjá sér og farinn að stunda íþrótt. 1 hans augum er Valssvæð- ið í senn heimili og staður þar sem hægt er að stunda íþrótt, og það er alveg öruggt, að þannig vill hann geta litið á það. Hví skyldi þá ekki að því stefnt, að drengn- um verði að þeirri ósk sinni? Sú ósk er heilbrigð og eðlileg og í fullkomnu samræmi við hans innsta eðli. Hann vill geta verið heima hjá sér og starfað að því, sem honum er hugleikið, og leik- urinn barnsins svarar til starfs þeirra fullorðnu. Þetta gengur ágætlega, meðan leikurinn er leikur. Því miður end- Séð yfir Uppeldis- og íþróttamiðstöð Vals að Hlíðarenda.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.