Valsblaðið - 24.12.1966, Page 37

Valsblaðið - 24.12.1966, Page 37
35 * A SLÓÐUM ELDS OG ÍSA Valsblaðið bað Reidar Sörensen, sem nú býr í Hamar í Noregi, en á sínum tima var þjálfari félagsins og góður félagsmaður, að skrifa og segja frá komu sinni til Is- lands og einhverju eftirminnilegu, frá dvöl sinni hér. Þar ber hæst ferð MUlIers og þeirra félaga á skiðum yfir þvert ísland um hávetur, og þótti i þá daga óðs manns æði að reyna. Á s.l. ári voru 40 ár síðan sú ferð var farin, og má segja að fátt hafi haft meira áróðursgildi fyrir skíðaíþróttina á vordögum hennar hér en einmitt þessi för þeirra, og fer vel á því að rifja hana svolítið upp. Á svonefndum „eldri árum“ mínum hef ég verið beðinn um að skrifa í Valsblaðið um áhrif mín frá þeim tíma sem ég dvaldi á Is- landi, og í Valsblaðið verður auð- vitað að skrifa um íþróttirnar. Ég kom til íslands haustið 1923, og þekkti hér ekkert, hvorki land- ið né fólkið eða aðstæður yfirleitt. ísland lá langt fyrir utan sjón- deildarhringinn, og sambandið héðan við útlönd var ekki eins og nú. Það voru því fáar fréttir um land og þjóð. Ég vissi að Island var kallað Sögulandið, og fyrir löngu síðan einnig Ultíma Thule, landið langt í norðri. Fólkið þar var af „okkar eigin stofni“ eins og skáldið sagði, og menningin hin gamla norræna menning, og að þar var talað hið gamla mál, sem við Norðmenn höfum, því miður, gleymt fyrir löngu síðan. Ég man mætavel þennan dag, í lok septembermánaðar, og var glaður að vera kominn í höfn, því „Sírius" gamli hafði barizt við storm og regn á öldum Atlantz- hafsins. Það voru fleiri glaðir en ég, og þá ekki sízt þeir, sem höfðu orðið að líða kvalir angistar og ótta, þegar skipið valt sem mest.á hinu úfna hvítfyssandi hafi. „Sirius“ gamli var ekkert stórskip, en klunnalegur og þunglamalegur, og hraðinn var ekki mikill þegai- á móti blés. Það var snemma morguns sem skipið kom í höfn, hálfrökkur og enn stormur og rigning. Aðeins af- greiðslufólkið var komið á stjá. Allir voru stúrnir og fölir í útliti. Ég varð dálítið hugsandi þegar ég hitti Bernhard Petersen á hafnarbakkanum, en hjá honum átti ég að vinna í sex mánuði, um það var samið. En þessir sex mán- uðir urðu að 16 ára dvöl á Islandi! Til að byrja með var allt dálítið annarlegt fyrir mig, og ég hugsaði margoft um að fara héðan aftur. En manneskjan á svo gott með að aðlaga sig aðstæðum, og hugrenn- ingar mínar til heimferðar eydd- ust fyrr en varði. Smátt og smátt aðlagaðist ég að- stæðum, kynntist stöðugt ein- hverju nýju og skemmtilegu. Aðeins nokkrum dögum eftir að ég kom til Islands fór ég í Skeiðaréttir. Það var ævintýri sem ég gleymi seint. Þetta var einkennandi fyrir Is- land, og ekki sízt bílferðin, þar sem á löngum köflum mátti segja að bíllinn væði og synti, dansaði og hoppaði á þessari erfiðu leið! Ég minnist veganna slæmu enn- þá með bæði ugg og ánægju! Mörg eftirminnileg atvik fylgdu eftir á komandi árum, og brátt fannst mér ég vera orðinn íslend- ingur. I þessum bílferðum mínum um landið varð ég oft undrandi yfir því hvað bílarnir þoldu. og að þeir skyldu bókstaflega ekki hristast í sundur á þessum ömurlegu vegum. Fyrstu kynni mín af íþróttum á Islandi urðu þegar þetta sama haust. Norskur rafmagnsfræðing- ur sem vann við rafstöðina í Reykjavík, sem einnig var kunn- ugur Bernhard Petersen, kom oft á skrifstofuna þar sem ég vann. Hann var mjög áhugasamur um íþróttir m. a. fimleikamaður og félagi í IR, og snerust því umræð- urnar oft um íþróttir. Hann bað mig að koma með upp í IR, sem þá æfði í fimleikahúsi Menntaskólans, og gerði ég það. Þegar eftir þessa fyrstu heimsókn mína var ég skrif- aður inn í IR. Síðar hitti ég L. H. Múller kaupmann, sem var mikill áhugamaður um skíðaíþróttir! Ekki hafði ég lengi dvalið á ísiandi þegar Múller bauð mér heim til sín og lagði þar fyrir mig áætlun um það að ganga á skíðum yfir þvert Island. Hann hafði lengi hugsað þetta mál og unnið að á- ætlun um þessa ferð. Þar sem skíða íþróttin var tiltölulega ung þá í R'eykjavík og nágrenni, var litið á skíðaferð um hávetur, þvert yfir landið, sem óðs manns æði, og hafði Múller því ekki fengið neinn til þess að fara með sér í för þessa. Hann hafði þó talað við tvo menn, þá Tryggva Einarsson frá Miðdal og Axel Grímsson frá Reykjavík, sem ekki voru því fráhverfir að fara með. Hann spurði mig hvort ég gæti hugsað mér að verða fjórði maður, og án þess að hugsa það nánar sagði ég þegar já. Áætlunin var svo gerð í smá- atriðum, og ferðin ákveðin í marz 1925 og var ferðin farin á tilsett- um tíma og áætluninni fylgt. Um þessa ferð, sem var eitt af stóru æfintýrunum mínum á Is- landi skrifaði L. H. Múller slcemmtilega frásögn og fara kafl- ar úr henni hér á eftir. Gerðist félagi í Val. Nokkrum árum síðar gerðist ég félagi í Val. Orsökin var eiginlega ósjálfráð umsögn mín, sem kom til með að hafa miklar afleiðingar fyrir mig persónulega Ég hef áður sagt frá þessu, og skal endurtaka

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.