Valsblaðið - 01.05.1986, Side 11
rLEIKSDEILDAR VALS
Vals , sem fyrst var veittur 1984, og hefur
verið veittur árlega síðan.
Þó svo sagt væri hér að framan að
félagið hefði átt góða yngri flokka á
árunum 1981-1983 tók það því miður
ekki til 3. fl. og minni bolta á þessum
árum. Enda vill það oft verða svo að þegar
vel gengur í meistaraflokki þá gleymist oft
starfið hjá þeim yngstu. I upphafi keppnis-
tímabilsins 83/84 hófst uppbyggingarstarf
hjá þeim minnstu í deildinni. Það starf
hefur verið unnið markvisst síðan og er nú
að byrja að skila árangri. Þannig eru í dag
50 strákar 11 ára og yngri, sem iðka körfu-
knattleik hjá Val, er voru 10-15 fyrir
fjórum árum. Valur hefur undanfarin tvö
keppnistímabil sent bæði A og B lið til
þátttöku í minniboltanum, sem bæði hafa
náð mjög góðum árangri. Tvö síðastliðin
keppnistímabil hefur félagið átt silfurverð-
launahafa á íslandsmóti. Þá eru í dag aðrir
yngri flokkar félagsins í mikilli sókn og lofa
góðu fyrir komandi ár.
Á ársþingi KKÍ 1983 var lagt bann við
notkun erlendra leikmanna í körfuknatt-
leiknum, þannig að á vissan hátt hófst nýtt
skeið í körfuboltanum haustið 1984.
Valur tefldi þá fram liði sem var blanda af
yngri leikmönnum sem þá voru ennþá
leikmenn með 2. flokki og svo reyndari
mönnum. Þjálfari liðsins var Torfi Magn-
ússon. Var hann fyrsti innlendi þjálfarinn
sem ráðinn er til meistaraflokks síðan árið
1980 og hefur hann þjálfað liðið allt fram
á þennan dag.Torfi hefur að öðrum
ólöstuðum verið ein styrkasta stoðin í
körfuknattleiknum í Val bæði í félags-
starfinu og sem leikmaður. Þetta keppnis-
tímabil varð félagið í öðru sæti í Islands-
móti eftir úrslitaleik við UMFN, en þetta
var fyrsti veturinn sem sérstök úrslita-
keppni fór fram um íslandsmeistaratitil-
inn. í bikarkeppninni mátti liðið einnig
sætta sig við annað sætið. Hinsvegar
vannst Reykjavíkurmótið. Það vannst
einnig veturinn eftir og var Valur þá búinn
að vinna Reykjavíkurmótið sex sinnum á
síðustu sjö árum. Á tveimur síðustu Is-
Reykjavíkurmeistarar í minnibolta 1985. Fremri röð: Hjálmar, Ólafur. Guðmundur,
Ágúst, Þórhallur. Aftari röð: Jónas, Óli Rafn, Ólafur, Óttar, Almar. Aftasta röð: Torfi,
Ragnar þjálfari, Lárus, Brynjólfur.
'f-'JP \ , s m g. Ji m
L 1 » i,J L. Jr^ -wm J” j
Reykjavíkurmeistarar 1986. Aftari röð: Jon West þjálfari.Ari Gunnarsson, Amar Guð-
mundsson, Hannes Haraldsson, Jón Bender, Bjarki Leifsson. Fremri röð frá vinstri:
Ragnar Þór Jónsson, Stefán Öm Pétursson, Eggert Kristófersson, Steinar Adolfsson.
VALSBLAÐIÐ 11