Valsblaðið - 01.05.1989, Side 7
FRAMTIÐARSYN
hefur blaðið snúist við og nokkrir tekju-
möguleikar eru i athugun.
— Hefur Valur einhverja sérstöðu miðað
við önnur félög, að þínu mati?
„Já, Valur hefur mikla sérstöðu. Fyrst skal
nefna sögu félagsins sem er á margan hátt
ótrúleg. í öðru lagi má nefna hrakningarsögu
knattspyrnuvalla Vals sem lauk með kaupum
á Hlíðarenda. Síðast en ekki síst má nefna
óhemju fjölda virkra félagsmanna sem hefur
í gegnum tíðina gert Val að stórveldi.
— Hvað viltu segja um þær framkvæmdir
sem hafa átt sér stað á Hlíðarenda og land-
vinninga félagsins?
„Valur varð að afsala sér hluta af lögbýlinu
Hlíðarenda til Reykjavíkurborgar vegna
lagningu nýs Bústaðavegar. í staðinn fékk
Valur jafn stórt land sem er vegastæði gamla
flugvallavegarins. Með því móti getur Valur
aukið starfssvæði sitt verulega í vesturátt og
bætt við æfinga- og keppnisvöllum. Þessir
landvinningar í vesturátt hafa dregið athygli
okkar að því landi sem liggur áfram í vestur
og er nú í eigu Landspítalans. Hugur okkar
stefnir á þetta land og ákveðin fyrirheit hafa
verið gefin af borgaryfirvöldum um stækkun
þess lands sem Valur hefur í dag. Reykjavík-
urborg hefur ekki ennþá efnt gjafaloforð sem
borgin færði félaginu á 70 ára afmæli þess
1981 en hefur sýnt fullan vilja að efla það.
Með því móti er framtíð Vals að Hlíðarenda
mjög björt því ef loforðið verður efnt tvöfald-
ast land Vals miðað við það sem það er í dag.
Markmið þessarar stjórnar er að Valur geti
leikið á heimavelli sínum alla keppnisleiki,
hvort sem um er að ræða leiki á íslandsmóti
eða í Evrópukeppni. Til þess þurfum við að
byggja nýtt íþróttahús. Til þess þurfum við
að byggja stúku við keppnisvöll okkar og
girða hann samkvæmt nánari reglum. Næstu
framkvæmdamarkmið eru gervigrasvöllur og
nýtt íþróttahús sem yrði löglegur keppnis-
völlur í Evrópukeppni bæði í handbolta og
körfubolta. Að mínu mati verður nýtt
íþróttahús að rísa fyrir heimsmeistarakeppn-
ina í handbolta á íslandi og gervigrasvöllur á
næsta ári — 1990. Sá völlur mun rísa á nýja
grassvæðinu en malarvöllurin verður nýttur
sem bílastæði.
Svo hefur það verið draumur minn, frá því
ég var formaður knattspyrnudeildarinnar
árið 1980, að byggja minningarkapellu um
séra Friðrik Friðriksson að Hlíðarenda. Með
því móti væri séra Friðriks minnst á veglegan
hátt og við gætum nýtt okkur kapelluna á já-
kvæðan hátt. Mér hefur alltaf fundist vanta
hátíðlegan stað þar sem leikmenn geta hist og
átt þögla íhugunarstund með sjálfum sér fyr-
ir mikilvæga leiki. Sú hugmynd varð því til í
mínu höfði að samtvinna þetta tvennt; minn-
ingu séra Friðriks og íhugunarstað. Eftir að
ég tók við formennsku í félaginu hef ég nefnt
Jón Gunnar Zöega ásamt leikmönnum sem voru heiðraóir eftir síðasta handknattleikstímabil. Theo
dór Guöfinnsson þjálfari er lengst til vinstri.
þetta við forystumenn KFUM og þeir sýndu
þessu strax mikinn áhuga. Síðan hefur Pétur
Sveinbjarnarson, fyrrum formaður félagsins,
fylgt þessu eftir með sínum alkunna dugnaði
og sýnist mér þessi draumur geta ræst fyrr en
varir.
„Valur gerir þær
kröfur að vera
alltaf á toppnum"
— Hvernig sérðu Val og Hlíðarenda fyrir
þér í framtíðinni?
„Hlíðarendi og þeir landvinningar, sem
áformaðir eru, tryggja knattspyrnufélaginu
Val glæsta framtíð. Hvernig þróunin verður í
keppnisflokkum Vals með tilliti til þeirrar
hálf-atvinnumennsku sem virðist vera að
ryðja sér til rúms, er erfitt að segja til um. Ég
reikna með því að Valur neyðist til þess að
taka þátt í þeirri þróun. Valur gerir þær kröf-
ur að vera alltaf á toppnum í þeim íþrótta-
greinum sem em stundaðar hjá félaginul’
— Er erilsamt að vera formaður Vals?
„Það er skemmtilegt starf og það gengur
ótrúlega vel að virkja menn til starfa. Valur á
marga vini og velunnara um allt land sem eru
tilbúnir að leggja sitt af mörkum.”
— Gefurðu kost á þér til formennsku
áfram?
„Ég reikna frekar með því. Mér finnst ég
þurfa að sjá gervigrasvöll og nýtt íþróttahús
á Hlíðarenda áður en minn tími rennur út. Þó
er það öllum félögum hollt að skipta um for-
mann og stjórnarmenn með ákveðnu millibili
til að staðna ekki. Mér þykir ljúft að vera
Valsmaður og ég mæti á alla meistaraflokks-
leiki félagsins í kvenna og karlaflokki í öllum
greinum. Sömuleiðis mæti ég á margar leiki
yngri flokkanna, sérstaklega ef leikið er á
Hlíðarenda. Ég hitti og hef kynnst mörgum á
Hlíðarenda og mér þykir oft dálítið óþægileg
þegar ungt fólk heilsar mér sem ég þekki
ekki. Ég hef það núna fyrir sið að heilsa öllu
ungu fólki sem verður á vegi mínum og horfir
til mín. Það er ógjörningur að muna eftir öll-
um þeim andlitum sem verða á vegi mannsl’
Unnið að snyrtingu svæðisins í kringum hrjóst
mynd séra Friðriks Friðrikssonar. Minningar
kapellan mun rísa rétt hjá henni.