Valsblaðið - 01.05.1989, Síða 20
HANDBOLTINN
SKÝRSLA HANDKNATT-
LEIKSDEILDAR VALS
íni.iftiiAU
SKÁTABÚÐIIM
HEWLETT
PACKARD
'Mrnmm
Jt l/
8 S-673399
PJj . Tg'jl l'h y ]■
jg _ Qfö |[
li'9
Islandsmeistarar Vals 1989. Aftari röð frá vinstri: Þóröur Sigurðsson formaður handknattleiksdeildar
Vals, Stefán Carlsson læknir, Einar Þorvarðarson, Gísli Óskarsson, TheodórGuðfinnsson, Þorbjöm
Jensson, Július Jónasson, Sigurður Sveinsson, Jón Kristjánsson, Ámi Ámason sjúkraþjálfari, Jón
Gunnar Zöega formaður Vals. Fremri röð frá vinstri: Pétur Guðmundsson liðsstjóri, Sigurður Sævars-
son, Jakob Sigurösson, Ólafur Benediktsson, Geir Sveinsson fyrirliöi, Páll Guðnason, Valdimar
Grimsson, Stanislaw Modrovski.
Ágæti Valsmaður! Þegar ég sest niður og
hripa niður á blað nokkrar hugrenningar um
handboltann í Val er mér minnisstæðastur
frábær árangur meistaraflokks karla síðast-
liðinn vetur, sem endaði með meistaratign.
Árangur yngri flokka Vals svo og meistara-
flokks kvenna var viðunandi þótt engir titlar
unnust á þeim vígstöðum. Valur þarf engu að
kvíða í þeim efnum þar sem félagið á að skipa
mjög efnilegum yngri flokkum. Á síðasta
keppnistímabili voru flestir okkar stráka ein-
faldlega á yngta ári í sínum flokkum og má
þess vegna vænta betri árangurs í vetur.
Úr því verið er að ræða um yngri flokka fé-
lagsins verður að viðurkennast að sú stjórn
sem nú situr hefur ekki staðið sig nógu vel að
málum yngri þátttakendanna. Staðreyndin er
þó sú að yngri flokkum félagsins verður að
sinna sem skyldi. Snemma síðastliðins hausts
þegar stjórnin ákvað árgjald og æfingagjöld
yngri flokkanna risu strax upp háværar radd-
ir foreldra um að það væri of hátt. Sannleik-
urinn er sá að hvorki árgjaldið né æfmga-
gjöldin eru of há. Það kostar nefnilega gífur-
lega peninga að standa að þjálfun hvers ein-
staklings í yngri flokkunum og borga fyrir
æfingaaðstöðuna. Valsmenn eru svo (heppn-
ir) óheppnir að eiga eigin íþróttahús sem er
mjög kostnaðarsamt að reka. önnur íþrótta-
félög, sem æfa í skólum borgarinnar, borga
einfaldlega ekki neina leigu. Hún er jú reikn-
uð en ekki greidd. Þegar gjaldið var ákveðið
var tekið tillit til þess að inni í því er kostnað-
ur vegna æfinga, ferðalaga, þjálfunar og skó-
búnaðar. Rétt er að taka fram að önnur félög
láta borga jafn háa upphæð en leggja ekkert
á móti. Unglingarnir þurfa að greiða sjálfir
keppnisferðalög út á land. Ég vil nota tæki-
færið og koma þessu á framfæri við foreldra
því mikið hefur verið rætt um þess mál. Sitt
sýnist hverjum í þessum efnum. Þá vil ég nota
tækifærið og tilkynna að stjóm handknatt-
leiksdeildarinnar hefur skipað þrjá menn í
unglingaráð. Þeir eru Hákon Sigurjónsson,
Óskar Thorberg og Gunnar Jóhannsson.
Valur tók þátt í Evrópukeppni meistaraliða
Þórður Sigurðsson,
formaður handknatt-
leiksdeildar Yals
Þórður Sigurðsson.
á síðasta ári og lék gegn Kyndli frá Færeyjum
í fyrstu umferð. Báðir leikirnir fóru fram í
Færeyjum og sigraði Valur í þeim báðum. Því
næst var leikið gegn Amesita frá Sviss og tap-
aðist útileikurinn með tveimur mörkum en
heimaleikurinn vannstmeð fjórum mörkum.
Þá var leikið gegn Magdeburg frá Aust-
ur-Þýskalandi og sigraði Valur á heimavelli í
frábærum leik með sex mörkum. Útileikur-
inn tapaðist með sama markamun en Valur
féll úr keppninni því liðið skoraði færri mörk
á útivelli. Þar með lauk Evrópudraum Vals
það árið og þótti öllum það súrt í broti því
dómarinn spilaði stórt hlutverk í síðari leikn-
um. Það er mál manna að Valsliðið sem teflt
var fram á síðasta ári sé það allra besta sem
Valur hefur átt og slái jafnvel út hinni heims-
frægu mulningsvél.
Valsmenn urðu fyrir blóðtöku síðastliðið
sumar þegar Geir Sveinsson, Sigurður Sveins-
son og Júlíus Jónasson gerðust atvinnumenn
í handbolta. Undirritaður er vart búinn að
jafna sig eftir þau átök sem áttu sér stað við
20