Valsblaðið - 01.05.1989, Qupperneq 43
„ÞOLI EKKI
AÐ TAPA“
Svali hefur þjálfart hjá yngri flokkum Vals undanfarin ár. Hér er hann ásamt 8. flokki sem varð í 2.
sæti á íslandsmótinu 1989.
FYRSTI KAPPLEIK-
URINN 1914
Þremur árum eftir að Valur var stofn-
að var ákveðið að leika kappleik við
Fram til fjáröflunar. Framarar voru vin-
samlegir og tóku málaleitaninni vel. Val-
ur var þó bundið af ákvörðuninni um að
leika ekki við lið utan KFUM og þar sem
séra Friðrik var ekki á landinu voru góð
ráð dýr. Án hans leyfis var ekki unnt að
leika við Fram. Fóru þá þrír ábyrgir fé-
lagar til séra Bjarna Jónssonar og tjáðu
honum vandræði sín. Tók séra Bjarni
málaleitaninni vel. Hann gaf þeim leyfi
til leiksins og kvaðst mundu svara fyrir
það við séra Friðrik ef til þess kæmi.
Vafalaust hefur þessi samstillti hópur
talið að þeir gætu leikið sæmilega knatt-
spyrnu og undir niðri viljað reyna sig við
Fram sem var talið sterkasta knatt-
spyrnuliðið. Ekki var keppt á íslands-
mótinu árið 1913 og 1914 því Fram var
eina liðið sem gaf sig fram til keppni.
Leikur þessi fór síðan fram sam-
kvæmt áætlun og var þetta fyrsta kapp-
lið Vals þannig skipað að því er stofn-
endur telja: Ástráður Jónsson, Árni B.
Björnsson, Filippus Guðmundsson,
Guðbjörn Guðmundsson, Guðmundur
Guðjónsson, Þorbergur Erlendsson,
Hallur Þorleifsson, Sveinn Þorkelsson,
Loftur Guðmundsson, Stefán Ólafsson,
Jón Guðmundsson.
Leik þessum lauk með því að Fram
vann með aðeins eins marks mun eða
3:2. Bendir þetta til að kapplið Vals hafi
verið komið lengra en búast hefði mátt
við eftir aldri leikmannanna og leik-
reynslu — sem var engin nema æfingar.
Þess má líka geta að Fram varð ís-
landsmeistari árið eftir, sent hefur stað-
fest þá skoðun að Fram hafi verið sterk-
asta liðið á þessum tíma.
hetjur skara ekkert ofsalega fram úr og núna
er ekki eins framandi og áður að tefla fram
útlendingi. Við horfum reglulega á körfu-
boltann í NBA-deildinni og okkur finnst til-
koma útlendinganna því ekki eins merkileg
og áður.”
Þess má geta að Svali hefur þjálfað yngri
flokka Vals í 4 ár og á sumrin hefur hann ver-
ið leiðbeinandi í Sumarbúðum í borg. „Mér
finnst ákaflega gaman að þjálfa og það er
mjög gefandi. Það, sem skiptir mestu máli í
unglingastarfinu er að hafa gaman af hlutun-
um, en ekki endilega að ala upp einhverja
snillinga. Hjá Val er þó ekki um neina skáta-
hreyfingu að ræða því við viljum vitaskuld ná
góðum árangri.
— Hvert stefnirðu í kröfuboltanum Svali?
„Að verða íslandsmeistari — það er alveg
á hreinu.”
ELD
VARNA
TEPPI
Margar stæröir og gerðir
90x90, 120x120 og
180x180 sm.
Allar geröir
eldvarnatækja. Þjónustum
slökkvitæki.
HAGSTÆTT VERÐ.
LEITIÐ UPPLÝSINGA.
□ ELDVARNKMIflSIÖfllN KF
ÓLAFUR GlSLASON & CO. HF.
SUNDABORG 22 SÍMI 91-84800
43