Valsblaðið - 01.05.1989, Qupperneq 48
FOTBOLTINN
Meistaraflokkur Vals 1989. Aftasta röð frá vinstri: Baldur Bragason, Þórður Bogason, Halldór Áskelsson, Einar Páll Tómasson, Atli Eðvaldsson, Magni
Blöndal Pétursson, Jón S. Helgason, Snævar Hreinsson. Miðröð: Eggert Magnússon formaður knattspyrnudcildar, Úlfar Másson formaður meistara-
flokksráðs, Ingvar Guðmundsson, Heimir Karlsson, Sævar Jónsson, Lárus Guðmundsson, Jón Þór Andrésson, Hörður Helgason þjálfari, Hilmir Ágústs-
son sjúkraþjálfari, Sævar Hjálmarsson liðsstjóri, Guðmundur Þorbjörnsson síðar þjálfari liðsins og Garðar Vilhjálmsson framkvæmdastjóri. Fremsta röð
frá vinstri: Guðmundur Baldursson, Sigurjón Kristjánsson, Bjarni Sigurösson, Þorgrímur Þráinsson fyrirliði, Lárus Sigurðsson, Gunnlaugur Einarsson,
Steinar Dagur Adolfsson.
Stutt ágrip af
sumrinu 1989 hjá
meisíaraflokki karla
í knattspyrnu
Ulfar Másson, for-
maður meistara-
fiokksráðs skrifar
Uppskera meistaraflokks karla í knatt-
spyrnu varð ekki eins drjúg og vonast var til
um vorið. Liggja þar margar ástæður að
baki. Eftir mjög vel heppnaða æfingaferð í
vor, þar sem Valsliðið tapaði naumlega fyrir
svissneska fyrstudeildarliðinu Luzern og
vann Baden sem leikur í 2. deild, hugðu menn
gott til glóðarinnar fyrir íslandsmótið. Þetta
gekk eftir í fyrstu leikjum mótsins og var Val-
ur í efsta sæti allt fram í níundu umferð, þótt
lítið væri skorað af mörkum. Þá fór að halla
undan fæti og dýrmæt stig töpuðust. Virtist
botninn detta algjörlega úr liðinu þegar leið
á sumarið og ég held að kalla megi ágústmán-
uð „hinn svarta” því þá töpuðust allir leikir
liðsins og það hrapaði niður í sjöunda sæti.
Það er ekki hægt að benda á eitt atriði öðru
fremur sem sökudólg fyrir óförunum því
margt liggur að baki. í fyrsta lagi var liðið
nokkuð breytt frá árinu áður. Ungir strákar
voru að stíga sín fyrstu spor í meistaraflokki
og nýir leikmenn komu úr öðrum liðum.
Okkur, sem störfuðum í kringum liðið,
fannst að í stað þess að kynnast hver öðrum
og skilja hver annan á leikvelli, var eins og
strákarnir fjarlægðust. í kjölfar þess virtust
þeir ekki megnugir að framfylgja því sem upp
var lagt af Herði Helgasyni þjálfara.
Þar sem ljóst var í lok ágúst hvert stefndi,
tók stjórn knattspyrnudeildar þá erfiðu
ákvörðun að leysa Hörð frástörfum. Sökin lá
alls ekki hjá Herði einum en þegar samband
rofnar á milli tveggja póla, verður að endur-
nýja annan hvom þeirra. Það segir sig sjálft
að erfitt er að leysa upp heilt knattspyrnulið
og varð Hörður þvi að víkja. Ákveðið var að
Guðmundur Þorbjörnsson tæki við liðinu í
lok keppnistímabilsins. Hann náði strax góð-
um tökum á strákunum og með sinni miklu
þekkingu á knattspyrnu og góðum skammti
af kímnigáfu glæddi hann liðinu aftur leik-
gleði og sigurvilja. Það er ljóst að ekki er
hægt að hafa ánægju af neinu verkefni nema
að kunna eitthvað til verksins og vita sem
næst um takmark þess sem tekist er á hendur.
Liðið tók mikinn kipp í kjölfar þjálfara-
skiptanna og af þeim níu stigum, sem eftir
vom í pottinum þegar Guðmundur tók við,
tóku strákarnir sjö þeirra. Valur hafnaði því
í 5. sæti á íslandsmótinu.
í Evrópukeppni bikarhafa dróst Valur á
móti Dynamo Berlin, besta liði Aust-
ur-Þýskalands síðustu árin. Liðið hefur með-
al annars orðið 10 sinnum meistari í heima-
landi sínu á síðustu 11 árum. Engu að síður
var farið í þessa leiki með því hugarfari, sem
gefist hefur vel á síðustu árum, það er; að
komast áfram. í fyrri leiknum, sem var hér
heima, var staðan 1:0 fyrir Val í hálfleik og
virtuststrákarnir hafa í fullu tré við Þjóðverj-
ana. Sigur blasti við þegar þeir náðu að jafna
um miðjan seinni hálfleik. Austur-Þjóðverj-