Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1906, Blaðsíða 14
2
ÓLAfUR s. thorgeirsson:
Á þessu ári teljast liðin vera:
frá Krists fæðing’...................... 1906 ár
frá sköpun veraldar ................... 5873 ár
frá upphafi íslandsbygðar.............. 1032 ár
frá siðabót Lúters....................... 389 ár
Árið 1906 er sunnudagsbókstafur : G.
Gyllinital: 7.
Myrkvar áriö 1906:
Á árinu 1906 verða 5 myrkvar, 3 á sólu og 2 á tungli.
1. Tunglmyrkvi 8.—9. febrúar, sýnilegur í Norður-Ame-
ríku. 2. Sólmyrkvi 22. febrúar, ekki sýnilegur hér. 3.
Sólmyrkvi 21. júlí, ósýnilegur. 4. Tunglmyrkvi 4. ágúst
sýnilegur í vesturhluta Norður-Ameríku, norðarlega í
Alaska og Asíu. 5. Sólmyrkvi 19. ágúst, ekki sýnilegur.,
Pláneturnar.
Venus er morgunstjarna til 14. febrúar, kveldstjarna
til 29. nóvember og eftir það morgunstjarna til ársloka.
Marz er kveldstjarna til 15. júlí, eftir það morgun-
stjarna.
Júpíter er kveldstjarna til 10. júni, morgunstjarna til
28. desember.
Satúrnus er kveldstjarna til 24. febrúar, morgun-
stjarna til 19. september, síðan kveldstjarna.
Tunglið.
Fylgistjarna jarðarinnar er tunglið. Þvermál þess er
2,163 mílur og fjarlægð þess frá jörð vorri 288,000 enskar
mílur. Braut sína umhverfis jörðina gengur það á því
tímabili, sem alment er kallað tunglmánuður; er það tíma-
bil alment talið 28 dagar, en er í raun réttri 27 dagar og
8 klukkustundir, eða rétt um það bil.
Um tímatalið.
Forn-Egiptar skiftu degi og nóttu í 12 kl.- stundir
hvoru.—og hafa Gyðingar og Grikkir ef til vill lært þá
venju af Babýlóníu-mönnum. Það er sagt, að deginum