Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1906, Blaðsíða 61
ALMANAK 1906.
31
RALPH CONNOR.
(Rev. C. W. Gordon. )
Flestum, er fylgjast meS því, sem gjörist í heiminum,
mun það kunnugt, að Winnipeg-bær er að vaxa með
óvanalega miklum hraða. Á þremur fjórum síðustu árum
hefir fólksfjöldinn tvöfaldast. Og áður næsta ár er liðið,
verður íbúatalan að öllum líkindum komin upp í 100,000
manns. Svo mjög hefir þessum fljóta vexti verið veitt
eftirtekt, að menn, sem komið hafa frá Lundúnaborg á
Englandi, hafa staðhæft, að þar sé nú stöðugt um Winni-
peg talað sem þann stað, er fasteignir hækki sem
stendur fljótar í verði en annars staðar á hnettinum.
Þar sem öll búsýsla mannanna er jafn-ung, og þar
sem jafn-langt er komið vestur á bóginn og hér, eiga fáir
á því von, að andlega lífið sé með miklum blóma. Vana-
lega er fyrst um það hugsað að safna auðlegð og komast
sem fyrst til góðra efna. Þegar ekki eru nema fáir tugir
ára síðan land var numið á einhverjum stað, er vanalega
nær því eingöngu um líkamlegar afurðir búskaparins
hugsað, en hinar andlegu látnar sitja á hakanum.
Ekki kernur oss til hugar að halda því fram, að þetta
hafi mikið síður átt sér stað í Winnipeg en annars staðar.
Gróðafýknin hefir mikil verið og er enn, og hyggindunum
að langmestu leyti beitt til þeirra hluta, sem í hag koma.
Samt sem áður fekk þessi vestlæga borg snemma orð á
sig fyrir ágæta alþýðuskóla og þó ekki um skör fram.
Kirkjur eru hér fjöldamargar og þykja prýðisvel sóttar