Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1906, Blaðsíða 89
ALMANAK 1906.
59
En |>ýSing;armesta samþyktin, er g'jörð var á þingfi
þessu, var ákvörðun um að gjöra tilraun til að stofna
kirkjulegt tímarit. Kirkjan íslenzka átti þá alls ekkert
málgagn, eins og kunnugt er, og var þess þeim mun
meiri þörf. Skyldi fyrst gefa út sýnishorn af blaði þessu;
átti blaðið að verða að stærð ein örk innheft í 8 blaða broti,
er út kæmi á mánuði hverjum. Þegar búið væri að gefa
út sýnishhorn þetta, skyldi áskrifendum safnað.
Hin önnur mál, er á dagskrá voru, urðu að bíða
næsta þings. Embættismenn voru þessir kosnir: síra
Jón Bjarnason formaður, Friðjón Friðriksson skrifari
og Árni Friðriksson féhirðir.
Þetta fyrsta ársþing kirkjufélagsins stóð yfir frá 24.
til 27. júní, eða í fjóra daga. Hafði það farið vel fram
og friðsamlega og Winnipeg-söfnuður tekið við gestunum
með opnum örmum og sýnt þeim þá gestrisni og kristi-
legu mannúð, sem ávalt hefir síðan komið fram í sambandi
við kirkjuþingin, hvar sem þau hafa haldin verið. Enda
hafa þau átt drjúgan þátt í að draga dreifða hugi manna
og skoðanir saman og binda menn böndum vináttu og
bróðurkærleika. Menn fundu til þess þegar á þessu
fyrsta kirkjuþingi og hafa ávalt fundið til þess síðan.
40. Einar Hjörleifsson.
Nokkuru fyrir jól veturinn 1885 kom Einar Hjörleifs-
son til Winnipeg. Hafði hann dvalið nokkura mánuði
suður í Minneapolis, hjá skáldinu norska Kristófer Janson,
sem þá var þar búsettur. Hann var þá giftur danskri
konu og settust þau hjónin hér að.
Ekki hafði hann dvalið hér lengi áður mönnum varð
Ijóst, að koma hans hingað var gróði stórmikill fyrir and-
legt líf Vestur-íslendinga. Hann tók þegar fjörugan þátt
0g áhrifamikinn í samkvæmislífi íslendinga í Winnipeg og