Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1906, Blaðsíða 93
ALMANAK 1906.
63
íslenzka mannfélagið í borgánni var fremur að færast í
aukana.
Söngfélagið, sem hér er nefnt að ofan, kallaði sig
Gígju. Það hélt fyrstu opinberu samkomu sína laugar-
daginn 1. maí í húsi Framfarafélagsins og hafði vandað
til hennar eftir beztu föngum. Sungu þeir þar báðir Ein-
ar Sæmundsson og Níels M. Lambertsen, læknir, sem þá
var hingað kominn. Einar Hjörleifsson talaði þar um við-'
hald þjóðernis vors, Níels Lambertsen um áhrif vínsins á
líkama mannsins, en Einar Sæmundsson las upp kafla af
fyrirlestri sínum um heimilislífið á íslandi. Þeir Jón Blön-
dal og Erlendur Gíslason léku þar ofurlítið leikrit eða
samtal, sem kallað var: Sambiðlarnir á ,,Mi\'artshótell-
inu“ og þýtt hafði verið úr ensku. Sigurður Jóhannessoit
flutti frumsamið kvæði, sem síðan var sungið af söng-
flokknum.
Frá skemtunum þessum höfum vér sagt, af því al-
þýðuskemtanir eru ein hin bezta skuggsjá og sannasta
þeirrar siðmenningar, sem fólkið hefir náð. Þar kemur
það fram, sem um er verið að hugsa, hveskamtsem menn
kunna vera á leið komnir.
42. Sameiningin.
Eins og frá hefir verið sagt, var það ákveðiÖ ákirkju-
þingi, að gefa skyldi út sýnishorn af kirkjulegu tímariti
eins snemma og kostur væri á, safna síðan áskrifendum
að riti þessu og láta það svo út koma, eina örk á mánuði
hverjum. Skyldi síra Jón Bjarnason háfa ritstjórn þess á
hendi og átti það að skoðast sem málgagn kirkjufélags-
ins. Sýnishorn af blaðinu kom út í desember 1885 og
var heita látið Sameiningin. Átti nafnið að tákna þá
eining, sem ríkja þyrfti með öllum söfnuðum kirkjufélags-
ins og um leið, að í kirkjulegu tilliti ættu állir að verða