Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1906, Blaðsíða 99
ALMANAR igo6.
6g
ing"s eig'n á ókomnum árum. En nú er flestum þaö úi*
minni liöið, að þar haföi Heimskringla fyrstubyggástöð sína.
í auglýsing sinni til almennings segja ritstjórarnir,
að þeir ætlist til að blað þeirra verði helmingi stærra en
nokkurt blað, sem bingað til hefir verið gefið út áíslenzku.
Samt ætti verðið ekki að vera hærra en á Leifi, 2 doll. ár-
gangurinn. Einkum og sérstaklega ætti það að vera fyr-
ir Islendinga í Vesturheimi. Öll þau mál, er þá varðar
miklu, lofa þeir að láta sig miklu skifta, hvort sem eru
stjórnmál, atvinnumál, mentamál eða önnur. ,,En þar
með er alls eigi sagt, að vér viljum ganga fram hjá þeim
málum, sem landa vora á íslandi varðar sérstaklega.
Einkum viljum vér taka svo mikinn þátt, sem oss er
mögulegt í stjórnmálum þeirra og bókmentamálum. Yfir
liöfuð vildum vér stuðla að því af fremsta megni, að meiri
andleg samvinna gæti komist á með löndum heima og
löndum hér. Auk þess mun blaðið hafa meðferðis alment
skemtandi kafla, einkum góðan skáldskap í bundnu og
óbundnu máli, frumritaðan og þýddan, sem jafnt ætti að
geta verið fyrir alla íslendinga,hvar sem þeir eiga heima“.
Blaðið átti að vera algjörlega óháð öllum hérlendum
pólitiskum flokkum. ,,Það hefir fult frelsi til að taka í
hvert mál á þann hátt, sem ritstjórinn álítur réttast og
sanngjarnast. Það mun heldur ekki ganga neinum flokk-
um á hönd. “
Um vesturflutninga, er þá stóðu sem hæst, var um
þetta leyti eðlilega mjög mikið rætt. Gjöra því ritstjór-
arnir svolátandi yfirlýsing um stefnu blaðsins í þeim efn-
um: ,,Blaðið verður alls enginn a g e n t fyrirVesturheims-
ferðir, hvorki til Kanada né annarra ríkja Ameríku. Það
falar um útflutninga afíslandi og innflutninga hingað í
land eins og önnur mál, að eins eftir sannfæringu og
beztu vitund ritstjórnarinnar, en engum innblæstri ann-
7