Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1906, Blaðsíða 104
74
ói.Atuk s. thokgeikssón:
rétt aS blaðinu frá 27. des. og ætli hann sér að halda því
út framvegis. Sé þetta samkvæmt loforði, er gefið hafi
verið um að hann mætti kaupa blaðið aftur af prentfélag-
inu, ef houum sýndist.
Um leið birtist önnur yfirlýsing frá Frímanni sjálfum
um það, að hann sé nú aftur eigandi blaðsins og ábyrgð-
armaður. Segir hann að öllum sé kunnugt, hver verið
hafi ritstjóri blaðsins (Eggert Jóhannsson) og hverir prent-
arar þess (Jón V. Dalmann og Þorsteinn Pétursson) og
helzti styrktarmaður (Eyjólfur Eyjólfsson). Kunni hann
þessum mönnum öllum beztu þakkir fyrir ágæta frammi-
stöðu í þarfir blaðsins. Segist hann hafa pantað nýja
stíla í íslenzku og öðrum málum í viðbót við þá, seni áður
hafi til verið, og vera nú einnig í útvegum með að fá
hraðpressu. Áform sitt sé, að hafa hér iiina'n fárra daga
góða og fullkomna prentsmiðju þar sem gefa má út blöð,
bækur og hvað annað, ekki að eins á íslenzku, heldur og
öðrum tungumálum Norðurlanda, jafnframt ensku. Verði
þá þessi íslenzka prentsmiðja ein fyrsta þess konar prent-
smiðja og íslendingar hinir fyrstu af útlendum þjóðflokk-
um, er komið hafi þáss konar mentastofnun á fót.—Svo
ekki vantaði nú góðar vonir og glæsilegan ásetning.
45. Eg-g-ert Jóhannsson.
Það er fullkomlega þess vert, að geta hér þess manns,
er um svo langan tíma var við blaðamensku riðinn með
Vestur-íslendingum.
Eggert Jóhannsson er fæddur 1. nóv. 1860 á Vind-
heimum í Skagafirði. Hann er sonur Jóhanns Jóhanns-
sonar Jóhannessonar, hreppstjóra á Vindheimum, Flutt-
ist hann tíl Vesturheims með föður sínum árið 1876.
Nam Jóhann faðir hans land norður við íslendingafljót
og bjó þar þangað til 1881. Þá fluttist hann suður til