Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1906, Blaðsíða 113
ALMANAK 1906.
83
að g-jöra húsiS úr garði eins og það ætti að vera og hefði
kirkjan því kostað fullgjör 4000 cloll. En óhætt er að full-
yrða, að kirkjan kostaði í raun og veru miklu meira, því
allir reikningar voru ekki fram komnir, þegar skýrsla
þessi var gefin. Höfðu fulltrúarnir tekið lán að upphæð
$1500 í nafni safnaðarins gegn veðtrygging í kirkjunni og
lóð hennar, er keypt hafi verið fyrir 500 doll. Oðrum
1500 doll. hafði verið skotið saman bæði af safnaöar fólk-
inu sjálfu, ýmsum íslendingum í Winnipeg utan safnaðar-
ins og nokkurum innlendum mönnum, sem styrkja vildu
fyrirtækið. Voru það samkvæmt þessu 1000 doll, sem
óráðstafað var af skuldinni. Vígsludaginn komu inn
250 doll., er saman var skotið við báðar guðsþjónusturnar.
Stærð kirkjunnar var eins og áður er sagt, auk for-
kirkju (12x18 fet). Veggloftin gengu með hliðveggjum
endilöngum og framstafni. Inn eftir kirkjugólfinu voru
fjórir gangar milli bekkjanna eða kirkjusætanna. En þar
sem altari er vanalega látið standa í íslenzkum kirkjum,
var pallur nokkuð lægri en veggloftin til beggja hliða.
Á honum stóð organið og fyrir framan það söngflokkur-
inn. Á öðrum palli töluvert upphækkuðum frá gólfi, fyrir
neðan og framan organloftið. var prestinum ætlaður stað-
ur. En þar fyrir framan og niður við gólfið, voru grád-
urnar. Kirkjan var hús mjög myndarlegt, þegar inn í
hana var komið. Var yfirsmiðurinn Bæring Hallgríms-
son, sem síðar varð bóndi í Argyle. Öll var kirkjan úr
timbri gjör, en loft og veggir að innan með steinlímshúð.
Enginn turn var á henni og þótti mörgum það til vanta,
enda mundi hið ytra útlit hennar við það orðið miklu veg-
legra. Setið gátu í henni alt að 1000 manns, þegar nóg
sæti voru til fengin, en föst sæti fyrir alt að 800 manns.
Mönnum taldist þá svo til,að í Winnipeg-bæ væru þá að
minsta kosti hálft þriðja þúsund íslendinga. Auðsætt