Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1906, Blaðsíða 114
84
ÓLAFUR S. THORGEIRSSON:
var, að gengr hávaðinn af þessu fólki til kirkju, mundi
ekki veita af því húsrúmi, sem í kirkjunni var, þótt það
sýndist ákaflegfa mikið í samanburði ,við húsrúm það, er
söfnuðurinn hafði haft að undanförnu.
Kirkjuvígsluhátíðinni var haldið áfram á mánudags-
kveldið 18. des. Þá var aftur samkoma haldin í nýju
kirkjunni og var þar aðal-atriðið fyrirlestur all-langur, sem
fluttur var af þeim, er þetta ritar, og var efni hans: Nokk-
ur kveld í Rómaborg fyrir átján hundruð árum.
,,Var þar lýst hinni glóandi ríkismannadýrð í hinni fornu
höfuðborg heimsins, en jafnframt hinni siðferðislegu rotn-
an, sem allur þjóðlíkaminn rómverski var gagntekinn af
hið innra, þótt alt væri fágað og skínanda á yfirborðinu.
Það var í stjórnartíð Nerós keisara, að ástandið í Rórfta-
borg var eins og því var lýst í fyrirlestrinum á 7. áratugi
eftir Krists fæðing. Ástandið var himinhrópandi, eins og
líka Páll postuli segir um það í síðara hluta af 1. kap.
bréfs hans til Rómverja. En þegar neyðin er stærst, er
náð guðs næst, og náð hins kristilega evangelíum var þá
sem óðast að breiða út hið lífganda endurlausnarljós sitt
í myrkraheiminum rómverska. Á dögum Nerós brauzt
hin voðalega ofsókn út í Rómaborg gegn kristnum mönn-
um; þeir voru þá fyrir sakir trúar sinnar hálshöggnir,
krossfestir, brendir upp lifandi á hryllilegastahátt og þeim
var varpað fyrir ljón og tígra, til þess að þessi villidýr rifi
þá í hel. Þá fekk kristnin grátlega blóðskírn, en það
sýndi sig þá líka áþreifanlega, hvílíkt himneskt afl hún
hefir til þess að sigra myrkravöldin í hinum syndum hlaðna
mannheimi.“ Á þenna hátt er grein gjör fyrir efni fyr-
irlestursins í Sameiningunni. Það komu inn 80 doll. um
kveldið, í kirkjubyggingarsjóðinn þegar þessi fyrirlest-
ur var fluttur
Winnipeg-söfnuður var nú orðinn fjölmennasti söfn-