Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1909, Page 74
52
OLAFUR S. THORGEIRSSON :
En úr þessu fórakurinn óðum að stækka. MeÖ hestum
vinst akuryrkja miklu greiðlegar en uxum. Áður langt leið
skifti hann þessum gömlu hryssum fyrir unga hesta. Ur
því fór hann að ala upp hesta sjálfur. Smám saman þok-
aðist efúahagurinn áfram, þó skuldir væri dálitlar. Fleira
varð að kaupa en vinnudýrin ein. Akuryrkjuáhöld voru
afardýr, og þau kaup bónda á fyrstu frumbýlings árum
fjarska tilfinnanleg. En eigi verður með nokkuru móti
af komist án þeirra, svo hver atorkumaður klífur til þess
þrítugan hamar að geta aflað sér þeirra.
Þegaráfyrsta vori búskapar síns kom Björn upp
bjálkahúsi í viðbót við torfkofann, er hann reisti í fyrstu.
í þeim bjálkakofa bjó hann 14 ár. Þar fæddist þeim dóttir
áfyrsta búskaparári, svonú vorubörnin tvö,sonurogdóttir.
Árið 1889 sendu þeir bræður Björn og Jósef móður sinni
og stjúpa og þrem hálfsystkinum fé til að komast af ís-
landi til Vesturheims. Fór það fólk alt til Björns. Jó-
hannes, hák'bróðir Björns, settist að hjá honum og hefir
verið lengst af með honum síðan. Tók hatin sér viður-
nefni bróður síns og nefnist fullu nafni Jóhannes Andrés-
son Walterson. Móðir Björns og stjúpi hafa verið á veg-
um Björns, þatigað til fyrir tveim árum að þau fluttust til
Páls, yngsta sonar síns.
Árið 1891 keypti Björn jörÖ, sem lá að hinum fyrri
jörðum hans fyrir 1200 dali og var Jóhannes bróðir hans í
þeim kaupum með honum að helmingi; lagði hann kaup
sitt fram til greiðslu fjársins að ráði Björns,sem áleithann
gæti eigi varið fé sínu betur. Jóhannes var með Birni 19
ár, þangað ti! í ttóv. 1907 að Björn brá búi, en Jóhannes
staðfesti ráð sitt og kvongaðist. Tók hann þá jarðir
bróður síns til leigu með áhöfn allri. En þá var Jóhannes
eigandi tveggja jarða sjálfur,sem sjálfsagt eru $8000 virði
efti gagnverði