Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1931, Blaðsíða 38
36
gift Halla Björnssyni á Vindheimum. 2. Árni, dó
15 ára. 3. Steinunn, býr með Kristjáni Jónassyni á
Víðir. 4. Björn. 5. Magnús, giftur Ástu dóttur Ein-
ars Stefánssonar frá Árnanesi í Skaftafellssýslu, er
getið veröur í þáttum Víðirbygðar. 6. Halldóra. 7.
Árni, giftur Sigríði dóttur Kristjóns Finnssonar, er
um eitt skeið var kaupmaður í Riverton; þau eru í
Winnipeg.
Gísli var góður búmaður og laginn verkmaður.
Hann var sérlega vinsæll og vel kyntur nágranni.
Hann lézt 12. apríl 1917. Eftir það bjó Dýrunn 2 ár
á landinu. Keypti hún þá tvær ekrur af landi aust-
an vert við Árborg. Þar býr hún nú með börnum sín-
um, Birni og Halldóru.
Þótt Dýrunn sé nú bráðum 74 ára, er hún furðu
ern. Hefir verið fríðleikskona á sínum yngri árum.
Greind er hún og skemtileg. Sérstaklega er hún
þeim góð, sem við bág kjör eiga að búa.
Magnús somur hennar keypti landið Víðirhól, og
býr nú á föðurleifð sinni. Kona bans er Ásta Einars-
dóttir, sem áður er getið, greind kona og ferðug við
búskapinn. Giftu sig 1909. Börn þeirra eru: 1. Ein-
ar; 2. Gíslína Guðrún; 3. Halli; 4. Louis Stefán; 5.
Iíelga; 6. Guðný Júlía; 7. Njáll; 8. Torfhildur; 9.
Jóhann Páll. — Magnús hefir rekið búskapinn af
miklum dugnaði.
Landnemi, lot 2.
Þórður Helgason. —Faðir hans var Helgi bóndi
á Brúarfossi í Hraunhreppi í Mýrasýslu, en hann
var son Illuga bónda í Síðumúla í Hvítársíðu, Ket-
ilssonar. Móðir Þórðar var Ástríður Einarsdóttir
frá Auðsstöðum í Hálsasveit, Hallssonar úr Dölum
vestra. En móðir Helga Illugasonar hét Vigdís; hún
var dóttir Þórðar prests á Lundi í Syðri-Reykjadal,
en systír Guðrúnar móður séra Magnúsar Gímsson-
ar á Mosfelli og þeirra mörgu valinkunnu systkina.