Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1931, Blaðsíða 44
I
42
Jóhanna, gift 1831 dr. Carl Wilhelm Schulz, shóla-
kennara í Bielefeld, þeirra son var dr. Harald
Schulz prófessor, hans son er dr. Ludwig Harald
Schulz, sem mestur tungumálamaður er talinn að
nokkru sinni hafi uppi verið. Kann rúmlega 200
tungumál, sem er fjórfalt við þaö, sem áður hefir
þekst.
Kona Geirfinns, en móðir Magneu, var Valgerður,
dóttir séra Jóns Kristjánssonar, er var prestur að
Þóroddsstað í Kinn og þingmaður fyrir Suður-Þing-
eyjarsýslu á fyrstu þingum hins endurreista al-
þingis. Síðar var ihann prestur til Þingeyrariklaust-
urs og síðast á Breiðabólsstað í Vesturhópi.
Börn þeirra Þorgríms og Magneu eru 9: 1. Guð-
rún Jóhanna; 2. Geirfinnur Sigurður; 3. Jón Þor-
grímur; 4. Magnús Bggert; 5. Gunnar Þórir; 6. Ing-
ólfur Tryggvi; 7. Valgerður Olga; 8. Halldóra Aðal-
heiður; 9. Ragnheiður Magnea. t
Áður en Þorgrímur settist að á Storð, var hann
um tímabil lögregluþjónn í Winnipeg, og gat sér
þar góðan orðstír, enda fékk hann tilboð um að
k^mast að þeirri stöðu síðar. Á gagnfræðaskóla
(business college) gekk hann þar einn vetur. Áðui'
og síðan vann hann víðsvegar um vesturlandið,
norðan og sunnan línunnar; við það kyntist hann
margbreyttum búnaðarháttum. Síðan hann sett-
ist hér að, hefir liann starfrækt búið af frábærum
dugnaði. Landið lot 3, keypti hann af Jóni mági
sínum. Eru nú stórar spiklur í akri eða engi, sem
áður voru huldar risaskógi á löndum hans. Magnea
er honum samhent við búskapinn, því hún er með
afbrigðum dugleg. Þau eru hin mestu myndarhjór
Magnús Sigurðsson heldur nú til á Storð. Hann
er 74 ára, fæddur 13. apríl 1856. Guðrún kona hans <
er 5 árum yngri. Guðrún dóttir þeirra hefir unn-
ið að matreiðslu þvínær stöðugt síðan hún kom
vestur, lengi við búnaðarskólann í Winnipeg og
*