Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1931, Blaðsíða 45
43
Ninette heilsustofnun. Þuríður er gift Jóhanni Frí-
mann, syni Gunnlaugs Frímann í Selkirk. Þau eru
búsett í Edmonton. Þau eiga 2 börn.
Landnemi, lot 6.
Sigríður Árnadóttir. — Guðmundur Guðmunds-
son var maður hennar, ættaður úr Skaftafellsþingi.
Þau giftust 1899 og fiuttust til Vesturheims 1902.
Guðmundur lézt 1904. Nokkru síðar tók Sigríður
heimilisrétt á þessu landi, og vann á því eignarrétt.
Sigríður er ættuð úr Skaftafellsþingi. Faðir henn-
ar var Árni bóndi Arngrímsson á Mýrum í Horna-
íirði, en móðir hennar var Vigdís Jónsdóttir, Jakobs-
sonar, hennar móðir var Guðrún, dóttir séra Bergs
að Kirkjubæjarklaustri, Jónssonar. Móðir Guðrún-
ar var Katrín, dóttir séra Jóns Steingrímssonar á
Prestsbakka á Síðu. — Þau Guömundur og Sigríð •
ur áttu saman 3 börn. Bergur sonur þeirra keypti
lot 30 og býr þar. Dætur eru tvær, Vigdís og Stein-
unn, gift Eymundi syni Daníels Péturssonar.
Landnemi, lot 5. ... . . ..
Sigtryggur Indriðason. — Foreldrar hans voru
Indriði Daviðsson og Friðbjörg Einarsdóttir frá
Auðnum í Laxárdal í Þingeyjarsýslu. Þau bjuggu á
Máná á Tjörnesi og voru síðast í Húsavík.
Guðný hét kona Sigtryggs. Hún var dóttir Þ
valds bónda á Hofsstöðum í Álftaneshreppi, Er-
lendssonar á Álfárósi, Sigurðssonar á Hofsstöðum.
en móðir hennar var Sesselja Einarsdóttir frá
Hvítsstöðum. Guðný var hinn mesti kvenskörung-
ur, enda var hún af góðu bændafólki komin, er átti
sín einkenni að rekja til hinna fornu Mýramanna.
Við lát hennar, 26. maí 1923, var þetta kveðið:
Hún vann sínu heimili’ inn hugstæða eið,
að hopa þar aldrei né renna,
þótt einstígið bratt yrði og erfitt þess skeið
og oft fengi á sárgrýttu að kenna.