Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1931, Blaðsíða 59
urhópi. En móðir Helgu var Guðrún dóttir Jóns
sýslumanns á Reykjum í Miðfirði.
Kona Jakobs er Guðbjörg, dóttir Guðbrands í
Katadal Guðbrandssonar og Guðbjargar ólafsdótt-
ur. Þau giftu sig 1894. Fluttu til Vesturheims ium
aldamótin, tóku landið 1901, voru þar 5 ár, seldu
það síðan og voru í ýmsum stöðum. Ragnar Emil
er son þeirra, en dóttir þeirra er Helga Ingibjörg,
gift Unnsteini Jakobssyni í Geysisbygð. Ragnar
keypti land á Víði og flutti þangað með foreldum
sínum. Hann er skýrleiksmaður í betra lagi og
stundar vel búskapinn.
Landnemi, lot 22.
Gunnar Guðmundsson. — Foreldrar hans Guð-
mundur og Guðrún Jónsdóttir, bjuggu á Skorastöð-
um í Norðfirði, en síðar á Krossi í Mjóafirði. Kona
Gunnars er Verónika, dóttir Eiríks bónda á Hofi í
Mjóafirði, Sigurðsonar bónda á Hesteyri. En móðir
hennar var Svanborg Einarsdóttir, bónda á Kross-
stekk, Hákonarsonar. Móðir Eiríks á Hofi var Ingi-
björg dóttir Hermanns í Firði, en systir Hjálmars á
Brekku í Mjóafirði.
Þau Gunnar og Verónika bjuggu fyrst á Krossi,
en fluttu þaðan vestur í Skagafjörð, að Vatni á
Höfðaströnd. Þaðan fluttu þau til Vesturheims árið
1900, og tóku rétt á þessu landi, sem þau nefndu
Hlíðarenda. Þau eignuðust 4 dætur, ein þeirra varð
eftir heima á íslandi, Jóhanna, gift Frans Jónatans-
syni, fiskikaupmanni í Málmey. -Hinar systurnar
eru: Eirikka, Svanborg og Guðrún Rósamunda,
sem allra verður getið annarstaðar í þessum þátt-
um. Einn son áttu þau: Hjálmar, er gekk í herinn,
en er nú vestur í landi. Einnig fóst'urson, sem hér
veröur getið annarsstaðar. Gunnar er látinn fyrir
nokkrum árum síðan. Hann var maður stiltur,
gætinn og greindur vel, að því leyti ólíkur nafna sín-
um í Njálu.