Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1931, Blaðsíða 74
72
Landenmi, N. E. 14 36.
Þórarinn Gíslason. — Paðir hans var Gísli bóndi
á Hofsströnd í Borgarfirði eystra, Benidiktsson,
Gíslasonar bónda í Njarðvík, Halldórssonar prests
á Desjarmýri, Gíslasonar prests s.st., Gíslasonar
lögsagnara, Eiríkssonar. Móðir Þórarins var Una
Guðlaug Sigfúsdóttir, af hinni alkunnu Melaætt í
Pljótsdalshéraði.
Kona Þórarins er Priðrika Sófía, dóttir Guðna
bónda í Kjólsvík, Stefánssonar bónda á Pinnsstöð ■
um í Eiðaþinghá, Stígssonar. En móðir Sofíu var
Guðný Högnadóttir bónda í Kjólsvík í Borgarfjarð-
arhreppi Jónssonar í Hleinargarði í Eiðaþinghá.
Móðir Guðnýjar hét Gyðríður Jónsdóttir. Hennar
móðir hét Guðlaug, en Hróðný hét móðir Högna.
Þau Þórarinn og Sófía giftu sig árið 1893, var
Þórarinn þá 24 ára, en Sofía er næst því ári yngri en
hann. Sama árið fóru þau að búa í Glettingsnesi í
Borgarfjarðarhreppi og bjuggu þar 2 ár. Síðan
bjuggu þau á ýmsum stöðum í Borgarfirðinum, þár
til árið 1903, að þau fluttu til Vesturheims, settust
þá á þetta land og tóku rétt á því.
Börn þeirra eru: 1. Una Guðlaug, gift Guðjóni
Danielssyni, er getið verður í sögu Víðir, 2. Björg
Sigríður, lijúkrunarkona í Vancouver, B.C., 3. Ed-
varð heima hjá foreldrum sínum, l.Ingibjörg, vinnur
í verzlunarbúð í Vancouver, B. C., 5. Guðni Aðal-
steinn, er heima. Tvær dætur mistu þau ungar.
Heimili þeirra hjóna er eitt liið prýðilegasta í
bygðinni. Þar er eitt hið vandaðasta íbúðarhús, og
öll umgengni er þar hin snirtilegasta. Þórarinn er
listhæfur maður og hefir góða forsjá að verkum.
Sönghæfileika hefir hann ágæta, — lærði til söngs
hjá séra Einari Jónssyni í Kirkjubæ. Hann er hinn
prúömannlegasti í allri framkomu. Búmaður er
hann ágætur, — enda stendur hann þar vel að vígi,
því liúsfreyjan er hin mesta búsýslukona, sköruleg