Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1931, Blaðsíða 75
73
og drífandi við heimilisstörfin og vel verki farin.
Það er ánægjulegt að heimsækja þau hjón, því bæði
eru þau fróð og minnug, skýr og skemtileg í við-
ræðu.
Röðin vestanmegin og sunnan.
Landnemi, lot 26.
Björn J. Björnsson. — Faðir hans var Björn bóndi
á Valabjörgum í Seiluhreppi, Björnssonar s. st.,
Ólafssonar í Valadal. Móðir hans var Halldóra dótt-
ir Jóns bónda á Leifsstöðum í Svartárdal. Hann vaT>
bróðir Björns sýslum. Blöndals í Hvammi í Vatns-
dal. Kona Björns er Ingibjörg dcttir Brynjólfs bónda
í Bjarnastaðahlíð í Skagafjarðardölum. Brynjólfur
var sá er fann bein Reynistaðamanna í grasa-
tekju. Faðir hans var Brynjólfur, er einnig var bóndi
í Bjarnastaðahlíð, Brynjólfssonar s.st. Tómassonar
í Ráðagerði. Bróðir Brynjólfs Tómassonar var Þor-
grímur gullsmiður á Bessastöðum, faðir dr. Gríms
Thomsen. — Ingibjörg á þar til greindra að telja,
enda er hún í betra lagi greind og minnið stálslegið.
Árið 1875 fóru þau Björn og Ingibjörg að búa í
Fremri-Svartárdal, og giftu sig sama ár. Til Vestur-
lieims fluttu þau 1888. Fluttu ári síðar í hina engi-
frjóu ísafoldar bygð, voru þar 12 ár, fluttu svo það-
an í flóðinu 1901 vestur að íslendingafljóti, þar sem
Guðmundur Nordal hafði sezt að og síðar var köll-
uö Framnesbygð, tóku þá rétt á þessu landi og
nefndu Bjarnastaðahlíð.
Þau hjón eru nú komin yfir áttrætt og mjög hrör-
leg að verða. Gullbrúðkaup héldu bygðarbúar þeim
12. júní 1928, er var fjölment samsæti. Tvö börn
eignuðust þau. Lára hét dóttir þeirra, sem dáin er
fyrir mörgum árum, þá komin á fullorðins aldur.
Brynjólfur heitir sonur þeirra búsettur í Winnipeg.
Kona hans er María Kristjánsdóttir systir séra
Alberts Kristjánssonar.