Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1931, Blaðsíða 76
74
Þau gömlu hjónin hafa nú á þessu ári 1930,.
brugðið búi og flutt til Hnausa, og verða þar á veg-
u,m Sigvalda Vídals og konu hans, er bjuggu á
Harðangri í nábýli við þau, eftir að Kristján Guð-
jónsson flutti þaðan, -—- en eru nú fyrir fáum árum
flutt til Hnausa.
Kristján S. Magnússon, sonur Péturs J. Magnús-
sonar (Ln. lot 35) hefir keypt jörðina Bjarna-
staðahlíð, veröur þar hans framtíðarheimili. Kona
hans er Friðrika dóttir Björns Erlindssonar (nú
Víðir). Þau giftust 13. apríl 1921. Börn þeirra eru:
1. Harald Karl, 2. Agnes, 3. Kristján Pétur.
Landnemi, lot 27.
Kristján G. Jónsson. — Faðir hans var Guðjón
son Jóns bónda á Stórulaugum í Reykjadal Björns-
sonar, en móðir hans var Ólöf Andresdóttir bónda í
Fagranesi í Reykjadal, Ólafssonar. Móðir Guðjóns
var Guðrún Kristjánslóttir frá Víðikeri í Bárðardal
Hún var föðursystir Kristjáns skálds Jónssonar.
Kristján Guðjónsson kom til Nýja-íslands, sunnan
frá Hallson, N. D., og settist á þetta land árið 1905,
setti hann rétt sinn á það og nefndi það Harðangur.
Að hann hafi þá liaft brúðförina á Harðangri í huga
er ekki ólíklegt, því nokkuru síðar kvæntist hann
Stefaníu Stefánsdóttir Guðnasonar, Erlindssonar.
Móðir Stefaníu var Sigurbjörg Hannesdóttir, Ás-
mundssonar, Gunnlaugssonar. Hennar móðir var
Kristín Benidiktsdóttir. Stefanía var rösk og um-
fangsmikil við bústörfin. Hún er bráðgreind, ör-
lynd og viðkvæm, vill öllu rétta líknarhönd sem líða.
Ekk varð þeirn hjónum hægt um búskapinn, var
þó Kristján verkmaður góður og vann kappsamlega
að hverju sem hann gekk, er hann var kominn að
vinnu. Er hann hafði unnið rétt sinn á landinu
seldi hann það Sigurði Vídal bónda á Fitjum í
Hnausabygð. En Kristján flutti með konu og börn