Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1931, Blaðsíða 85
83
um. Hún var hin mesta búsýslukona, enda kom þaö
sér löngum vel, er hún varð að sinna verkahring
bóndans hin fyrri árin, er hann varð oft að vinna
langt frá lieimilinu á meðan efnin voru lítil; stjórn-
aði hún 'þá búinu af miklum dugnaði og fyrirhyggju.
Vorið 1929 brá Kristjana búskap og fór þá til Þór-
varar dóttur sinnar sem er búsett í Árborg. Galizíu-
maður keypti landið.
Landnemi, lot 36.
Ingibjörg Benediktsdóttir. — Hún var systir Krist-
jcnu, sem hér var getið. Ingibjörg kom sunnan frá
N. Dakota til Nýja-íslands, árið 1901, og settist á
þetta land. Hún var ekkja og tók rétt á landimu..
ísak hét maður. Hann var son Jóns bónda í
Stapaseli í Stafholtstungum, Jónssonar. En móöir
hans var Sigurlaug Eiríksdóttir, er síðar giftist Þórði
Magnússyni frá Svartagili í Norðurárdal, og með
honum kom ísak til Vesturheims 1880, og settust
þeir þá að í N. Dakota.
Með Ingibjörgu bjó ísak á landi hennar og var bú-
inn að búa mecf henni áður syðra, -— eða hún með
honum. Sjálf við sig réðu þau .uin staðfestu ráðs
síns, og lifðu saman í ástríkri sambúð. Einn son áttu
þau saman. Hann heitir Aðalsteinn, býr hann nú á
landi móður sinnar, er hann hlaut í sinn erfðahluta
ásamt landi föður síns. Aðalsteinn er giftur Sigríði
Helgu dóttur Kristinns Fr. Kristinnssonar. Börn
þeirra eru tvö, dóttir: Kristín Dóróþea, en sonur er
Viktor Ingiberg. Hin mngu hjón eru líkleg til þess að
eiga góða framtíö fyrir höndum, bæði eru þau vel
að sér gjör og prýðisvel greind. Búa þau laglegu búi
er þau halda 1 góðu horfi.
Um ísak mátti það segja, að hann hafði fjölhæfa
greind. Fróður var hann og minnugur, um margt
var hann athugull og vel sýnt um búskapinn. Hann
var hagvirfeur og lagði gjörva hönd á margt. En
hann varð að ganga við tréfót og staf, því hann hafði
t