Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1931, Blaðsíða 87
85
hefir borið þann harm í hljóði að sjá á bak þremur
börnum sínum uppkomnum eftir að liafa mist mann-
inn sinn á bezta aldursskeiði.
Gunnar lézt 26. ágúst 1911, 46 ára gamall. Hann
var þrotinn að heilsu síðustu, árin. Á meðan heilsan
entist, var hann sérstaklega glaðlyndur maður,
fyndinn og orðheppinn, var jafnan reiðubúinn til
þess að koma fólki til að hlæja, — næstum því
hvernig sem á stóð. — Aldrei hló liann þó sjálfur:
svo var hann stiltur og prúður. Heimilisfaðir var
liann ágætur. Eftir lát Gunnars seldi Sesselja land ■
ið. Plutti hún þá til Árborgar. Þar kom hún sér upp
laglegu húsi, og hefir dvalið þar síðan.
Landnemi, lot 38.
Sveinn Sveinsson. — Faðir hans var Sveinn bóndi
Guðmundsson í Kakkarhjáleigu við Eyrarbakka,
ættaður úr Landssveit í Rangárþingi, en móðir
hans var Sæfinna Ásbjörnsdóttir frá Kolholti í
Flóa. Jóhanna heitir kona Sveins hún er dóttir Jóns
bónda í Syðraseli í Ytrihrepp, Jónssonar s.st., Sig-
mundssonar, en móðir Jóns föður Jóhönnu var Vil-
borg Ólafsdottir, systir Jóns Ólafssonar er var bóndi
í Steinsholti en seinast í Bræðratungu. Móðir Jó-
hönnu var Guðrún Jónsdóttir bónda í Hörgsholti í
Ytrihrepp, Magnússonar.
Þau Sveinn og Jóhanna fluttu frá Reykjavík til
Vesturheims um aldamótin, settust nokkunu síðar
á þetta land og bjuggu á því þar til 1913 að þau
seldu það og fluttu til Árborgar og þar búa þau nú.
Það er mikið í þau hjón spunnið. Sveinn er nú
bráðum hálfáttræður og vinnur hjá bæjarbúum
ýmisleg störf og sleppir aldrei verki úr hendi því
hann sér varla framúr því sem hann hefir að gera.
Hann þarf ekki að kvarta um atvinnuleysi. En Jó"
hanna knýr rokkspilið og smellir fingrunum á prjón-
ana. Þau hjón eru við góð efni og ættu að fara að
Almanak 1931, 5.