Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1931, Blaðsíða 94
92
um og bjuggu í Ási í Hegranesi. Móðir Gunnars á
Lóni var Sigurlaug dóttir Gunnars bónda á Skíða-
stöðum í Laxárdal ytri. Móðir Jóns Gunnarssonar
var Guðný, dóttir Jóns prófasts í Reykholti, Þor-
varðssonar prests í Holti undir Eyjafjöllum, Jóns-
sonar prests á Breiðabólsstað í Vesturhópi, Þor-
varðssonar bónda á Björgum í Kinn, Þórðarsonar
bónda á Sandi, Guðlaugssonar bónda á Laxamýri,
Þcrgrímssonar, Þorkelssonar. — Móðir Guðnýjai'
var Guðríður, dóttir Skapta læknis í Rvík, Skapta-
sonar læknis í Rvík, Sæmundssonar bónda í Síðu-
múla í Ilvítársíöu. Móðir Skafta læknis eldra var
Guðríður, dóttir Skapta bónda í Hraunsnefi í Norð-
urárdal, Sumarliðasonar bónda í Hraunsási í Hálsa-
sveit. En móðir Skafta Sumarliðasonar var Ing-
veldur, dóttir Guðmundar bónda á Hafþórsstöðum
í Norðurárdal, Hjálmssonar bónda á Skarðshömrum,
Guömundssonar lögréttumanns í Geldingaholti í
Skagafiröi, Kolbeinssonar bartskera (d. 1616)
Hjálmssonar. Bróðurson Ingveldar var Guðmund-
ur hreppstjóri Hjálmsson á Háafelli í Hvítársíðu.
sem hin fjölmenna Háafellsætt er frá komin. Þar
til má telja þá: Hjört rafmagnsfræðing Þórðarson,
Jósafat ættfræðing Jónasson (Stein Dofra), og dr,
Jón Helgason, prófessor í norrænum fræðum við
Kaupmannahafnarháskóla, sem allir eru víða nafn-
kunnir.
Jón Gunnarson keypti landið af Eiríku, ekkju
Benidikts Benjamínssonar. Hann býr nú á landinu.
Hefir þar góðan og fjölbreyttann búskap, sem hann
kann vel með að fara. Hann er ötull og fyrirhyggju-
sarnur búmaður.
María heitir kona Jóns. Hún er af góðum bænda-
ættum á Jótlandi. Mentuð og vel gefin kona. Á
Jótlandi dvaldi Jón nokkur ár áður en hann flutti
vestur ym haf. Þau hjón eiga eina dóttur, er heit-
ir Agnit og tvo sonu, Gunnar og Axel.