Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1931, Blaðsíða 95
93
Landnemi, lot 48.
Ingibjörg Guðmundsdóttir. — Hún var seinni kona
Benjamíns bónda á Ægisíðu á Vatnsnesi en móðir
Guðrúnar í Árdal og Benidikts sem var getið að
framan.
Landnemi, lot 49.
Baldvin Jónsson. -—Faðir hans var Jón bóndi á
Höfða á Höfðaströnd, Jónatansson, bónda í Litla-
skógi á Árkógsströnd, Jónssonar prests á Bægisá
Þorláksonar. Flestir kannast við þjóðskáJdið Jón
Þorláksson þarf því ekki að telja lengra. Móðir
Baldvins hét Sigríður Jónsdóttir Vigfússonar. Kona
Baldvins er Ingibjörg, dóttir Páls bónda á Geirmund-
arstöðum í Sæmundarhlíð, Pálssonar skálds í Potta-
gerði, Þorsteinssonar á Reykjavöllum í Skagafirði
Móðir Ingibjargar var Guðbjörg dóttir Björns bónda
í Glæsibæ, Haíliðasonar. En móðir hennar var Guð-
rún Bjarnadóttir bónda á Hraunum í Fljótum. Móð-
ir Þáls á Geirmundarstöðum, en kona Páls í Potta-
geröi var Gunnvör ólafsdóttir frá Grýtu.
Þau Baldvin og Ingibjörg giftu sig 3. júní 1897,
íluttu til Vesturheims árið 1900. Tveim árum síðar
tóku þau rétt á landinu og settust á það, hafa búið
þar góðu búi. Bæði eru þau hjón prýöilega greind,
—enda frá greindum komin. — Á þjóðskáldið þarf
ekki að minna. En um bóndann Pál í Pottagerði er
sagt, að betur hafi þótt skáldmæltur en títt var urn
alþýðumenn þeirra tíma. Svo nærri virtist ganga
þeim lærðu, sem bezt þótti farið í þeirri ment.
Þau hjón hafa eignast tvær dætur: Sigurlín Ingi-
björg, gift Jóni James, landnema sem getið er. Emil-
ía Rósa er gift Jóhanni Vigfússon. Faðir hans er
Guðmundur Vigfússon landn. norðvestnr af Fram-
nesbygð.
Nú hafa gömlu hjónin látið af búskap, en ungu
hjónin Jóhann og Emilía tekin við. Þau eru nýlega