Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1931, Blaðsíða 96
94
gift. Hvíla nú á þeim hugheilar óskir um hamingju-
sama iramtíð, því bæði hafa hlotið almenningshylli.
Jóhann er með afbrigðum duglegur, er því líklegur
til stórra framkvæmda. En Emilía hlotið góða skóla-
mentun og kent á barnaskólum. En beztu undir-
stöðuna fyrir heimilisstjórnina hefir þó móðir henn-
ar lagt fyrir hennar framtíð.
Landnemi, lot 50.
Guðjón Jónsson. — Foreldrar hans voru Jón Jóns-
son og Guðlaug, er bjuggu á Svínabökkum í Vopna-
íirði. Faðir Guðlaugar var Gísli bóndi á Þorvalds-
stöðum á Norðurströnd í Norðurmúlasýslu. Guðjón
var þá nýlega fermdur er hann fór úr foreldrahús-
um, en var þá nær tvítugur er hann flutti til Vestur-
heims. Síðan hefir hann engin kynni haft af frænd-
fólki sínu. Þess vegna hefir hann ekki getað gefið
nákvæmari upplýsingar um ætt sína, en hér er
greint. Er hann þó skýrleiksmaður í betra lagi.
Kona Guðjóns er Salín Sigurborg Kristjánsdóttir,
Friðfinnssonar, sköruleg kona og myndarleg. Þau
hafa eignast 11 börn, 5 sonu og 6 dætur, þær eru:
1. Kristín Friðrika, 2. Lovísa Sigurdrif. 3. Sigrún,
4. Salín Júlíetta, 5. Oktovía Aðalheiður, 6. Olga
Sigurey. Synir þeirra hjóna eru: 1. Kristján Gunn-
laugur, 2. Páll Hafsteinn, 3. Karl Alfred, 4. Jón, 5.
Stanley Anton.
Þau hjón hafa aldrei verið rík á efnalega vísu, en
þau hafa unnið gott dagsverk. Landið tóku þau og
settust á það árið 1901. Komu þá frá Selkirk.
Landnemi, lot 51.
Benjamín S. Guðmundsson. Hann er sonur Péturs
Stefáns Guðmundssonar í Árdal, og konu hans Guð-
rúnar Benjamínsdóttur frá Ægisíðu. Landið tók
hann 1905. Sama ár giftist hann Júlíönu Þorsteins-
dóttur frá Ingólfsvík í Mikley. Hún er systir Jóns