Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1931, Blaðsíða 101
til Vesturheims 1886. Tóku rétt á landi norðanvert
við Hallson, bjuggu þar 15 ár. Þaðan fluttu þau
norður til Nýja-íslands 1901 og settust á þetta land.
Börn þeirra eru: 1. Guðjón, 2. Guölaug, gift Jóni Þor-
steinssyni Ásmundssonar, 3. Jónína Margrét, gift
Sigurði Einarssyni, 4. Guðbjörn, 5. Guðmundur, 6.
Jódís, gift Sigurði M. Brandssyni, (lot 46.).
Sólrún lézt 1. jan. 1924, 76 ára. Hún þótti búsýslu-
kona í betra lagi, en fáskiftin utan síns eigin verka-
hrings en rækti þeim mun betur skyldustörf þau er
heimilið krafðist. Eftir lát hennar fór Jón til Guð-
bjarnar sonar síns og hefir nú rólega daga, enda er
hann kominn um áttrætt. Og er enn glaður og létt-
ur í lund sem ungur væri. Landið hefir hann
selt Jónasi Hermundi syni Guðm. Jónssonar.
Landnemi, S.E. !4 19.
Guðbjörn J. Björnsson. — Hann er sonur Jóns
Björnssonar og Sólrúnar Jónsdóttir. Landið tók
hann 1904. Kona hans er Ingibjörg, dóttir Þorleifs
frá Miðgili í Langadal í Húnavatnssýslu, Sveinsson-
ar í Enni Kristóferssonar. En móðir hennar er Guð-
rún Eggertsdóttir frá Skógtjörn á Álftanesi. Þau
foreldrar hennar tóku land á Víðir. Þau Guðbjörn
og Ingibjörg hafa eignast eina dóttur er Guðlaug
Jónína heitir. Þau lijón stunda búskapinn af fyrir-
hyggju og dugnaði.
Landnemi, % 18.
Halldór Stefánsson. — Hann er hálfbróðir Þórar-
ins Stefánssonar sem hér verður getið næst og hef-
ir veriö á hans vegum og þeirra feðga, en nú kom-
inn yfir áttrætt. Guðbjörn J. Björnson er nú að
kaupa landið.